Ríkisstjórnin minna virði en Icesave-skuldbindingar

Forsenda þess að við getum tekið Icesave-samningana upp frá grunni er að ríkisstjórnin segi af sér. Það er ríkisstjórnin sem gerði upphaflega samninginn sem var liðónýtur og ekki nema illskárri eftir þriggja mánaða yfirlegu.

Við eigum að byrja upp á nýtt. Til að það sé hægt verður að skipta um stjórn. Össur Skarphéðinsson utanríkisráherra útmálaði það í fréttum að Bretar og Hollendingar hefðu áttað sig á alvöru málsins þegar Ögmundur Jónasson sagði af sér ráðherradómi. Þungi málsins myndi snaraukast við stjórnarkreppu.

Ríkisstjórn Jóhönnu töluvert minna virði en Icesave-skuldbindingarnar. 


mbl.is Kvittað fyrir Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sævar Helgason

Og nú tekur við að skattleggja okkur - þjóðina, vegna 300 milljarða gjaldþrots Seðlabanka íslands í aðdraganda hrunsins.

Það láðist að taka trygg veð hjá einkabönkunum. Bara verðlaus ástarbréf fundust í rústunum.

Þetta ku vera um 5 milljónir á hverja 3ja manna fjölskyldu.

Óláni Íslands verður allt að vopni. 

Vonandi verður Sjálfstæðisflokkur lagður af. Í ríkisstjórn á hann ekkert erindi meir.

Sævar Helgason, 19.10.2009 kl. 17:29

2 identicon

Já og samfylking verði líka lögð niður, hún á nú líka stóran þátt í þessu. 

Geir (IP-tala skráð) 19.10.2009 kl. 17:55

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Fjórflokkurinn á að segja af sér eins og hann leggur sig. VG hafði nokkuð hreinan skjöld þar til nú. Núna mega þeir fylgja hinum í ruslið.

Kolbrún Hilmars, 19.10.2009 kl. 18:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband