Ögmundur og táknmál stjórnmálanna

Ögmundur Jónasson skilur táknmál stjórnmálanna og er tilbúinn að greiða atkvæði með sannfæringu sinni og gegn Icesave-samningnum. Í Icesave er tekist á um hvort við sem þjóð eigum að fórna eins og einni ríkisstjórn eða skrifa upp á 800 milljarða króna skuld möglunarlaust.

Ein ríkisstjórn verður aldrei 800 milljarða króna virði. Engu breytir hvaða ríkisstjórn ætti í hlut. Ríkisstjórnin verður að falla á sverðið, það er skylda hennar.

 

 


mbl.is Ögmundur ekki ákveðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Og stöndum við þá ekki örugglega á grænni grein, fyrst lausnin er svona einföld?

Sigurlaug (IP-tala skráð) 2.7.2009 kl. 18:41

2 identicon

Oh , hvað er Ögmundur yfirleitt að þvælast í pólitík .Hef ALDREI skilið það .

Kristín (IP-tala skráð) 2.7.2009 kl. 20:04

3 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Fjórskipti einflokkurinn hefur engin úrræði nema það sem hentar kostendum hans og eigendum; ein samsteypa hans kemur landinu á hausinn og næsta útgáfa viðheldur ómögulegri skuldabyrði á gjaldþrota búi. Á endanum hirða eigendur fjórflokksins allt draslið fyrir ekki neitt sem er nákvæmlega eftir stefnunni.

Baldur Fjölnisson, 2.7.2009 kl. 20:21

4 Smámynd: Elle_

Það er óheiðarlegt og svikult af stjórnmálamanni að kjósa EKKI samkvæmt sannfæringu sinni og skylda hans að gera það.

Elle_, 2.7.2009 kl. 22:45

5 Smámynd: Baldur Fjölnisson

Hóra hefur enga sérstaka hugmyndafræði utan þá að að hlýða mangaranum og þessi ömurlega staðreynd blasir núna óhugglega glögglega við hjá núverandi stjórn fjórskipta fjórflokksins.

Baldur Fjölnisson, 2.7.2009 kl. 22:54

6 Smámynd: Elle_

En hvað varð um það að 15% þjóðarinnar ættu að kjósa í alvarlegum málum?
http://ziggi.blog.is/blog/ziggi/entry/906251/


Elle_, 2.7.2009 kl. 23:07

7 Smámynd: Páll Geir Bjarnason

Skil ekki hvað alltaf er verið að tala um þessar upphæðir í krónum. Króna hefur svo margrætt og loðið gildi að upphæð í krónum segir manni nákvæmlega ekki neitt um raunveruleikann.

Páll Geir Bjarnason, 3.7.2009 kl. 01:27

8 identicon

Ögmundur og nokkrir Vinstri Grænir virðast skilja vel að þetta mál er þver flokkspolitískt þó Samfylkingin ætli sér að nota þetta sem haldreypi eða stokkpall inn í Evrópusambandið, enda virðist engu skipta þó allt sé hér að fara til fjandans ,fólk að flytja,fyrtæki að deyja,atvinnuleysi og örbirgð í kortunum halda þessir helvítis bjánar að Evrópa ætli sér að standa vörð um hagsmuni okkar. Þvílíkir helberir vitleysingar. Ef eitthvað hefur komið á daginn í þessum hamförum sem við erumí er það hið algera skilnings og miskunarleysi stóru hákarlana í  Evrópu sem eru algjörlega tilbúnir í það sjúga úr okkur það litla líf sem nú er eftir og hrækja okkur um leið og því er lokið.Virðingarleysi Samfylkingarinnar í gær í umræðunni um Icesave verður þeim ætíð til háborinnar skammar. Veit um fólk í minni fjölskyldu sem ætið hefur stutt samsullið sem ætlar aldrei að styðja þann flokk framar. Við verðum að fella þennan samning því það verður engin til að borga hann eftir 7 ár.

Jonas (IP-tala skráð) 3.7.2009 kl. 09:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband