Þýskur agi vaxta gegn stjórnleysi ASÍ/SA

Vextir mega ekki lækka niður fyrir verðbólgu, eins og óábyrgu samtök vinnumarkaðarins krefjast, vegna þess að sparnaður mun fuðra upp og gamalkunnur verðbólguhugsunarháttur grafa um sig á ný.

Ævaforn gildi um sparnað og ráðdeild er það sem þjóðin þarf á að halda. 

Undarlegur er málflutningur aðila vinnumarkaðarins þar sem þeir í einn stað krefjast inngöngu í ESB með meintum stöðugleikaáhrifum en í annan stað vilja þeir vaxtalækkanir sem myndu valda nýrri kollsteypu.

Við eigum að byrja hvern dag á því að þakka fyrir krónuna annars vegar og hins vegar að fordæma lágvaxtafirruna sem tröllríður húsum.


mbl.is Vextir lækkaðir í 12%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já...heimska íslendinga kostar.  Er thad ekki ágaett ad íslendingar hljóti thá refsingu sem their eiga skilda?

Vid hverju er ad búast thegar thjódin hefur gefid graent ljós á spillinguna í meira en 20 ár?

Kjósendur spillingarflokksins og framsóknar verda ad taka sökina á sig.  Thad voru kjósendur spillingarflokksins og spilltu framsóknar sem kölludu yfir thjódina kvótakerfid sem er nú búid ad rústa efnahag og sidferdi thjódarinnar algerlega.

Ég segi bara:  GOOD LUCK med ad byggja upp efnahaginn og thjódfélagid á theim gerspillta grunni sem kvótakerfid er og theirri fáránlegu adgerd sem 5% árleg fyrning er. 

Framtíd íslands er kolsvört.  Ísland verdur í framtídinni sama skrípólandid sem thad hefur verid sídan ad kvótakerfid var sett á. 

Ad búast vid ad eitthvad lagist eda ad heidarlegt og gott fólk geti hjálpad thjódinni vid slíkar fáránlegar leikreglur og spillingu er hrein heimska.

Nei...Ísland heldur áfram ad vera sjúskad land og ekkert er líklegra en ad efnahagslegt gjaldthrot einstaklinga og fjölskyldna verdi algengara og algengara og baetist ofan á sidferdilegt gjaldthrot thjódarinnar. 

Framtídin:  Gjaldthrot einstaklinga og fyrirtaekja (hefur thegar hafist).  Velferdakerfid hrynur(hefur thegar hafist).  Thorskstofnin gaeti hrunid(hefur thegar hafist).  Fasteignaverd hrynur(hefur thegar hafist). 

Thad virdist vera algerlega ómögulegt ad koma thví inn í hausinn á fólki ad ef eitthvad jákvaett á ad gerast verdur thjódin ad losa sig vid kvótakerfid strax.

Sidferdi thjódarinnar er löngu hrunid.

Svört framtíd Íslands (IP-tala skráð) 4.6.2009 kl. 10:22

2 Smámynd: Halldór Jón Júlíusson

Er sammala greinarhøfundi, Rom var ekki bygd a einum degi og Islensk endurreisn kjemur til med ad taka tima. latum okkur snua bøkum saman og byggja stein a stein en ekki rifast hver i sinu horni og koma med urrædi sem eru langt fra veruleikanum. Veit ad folk efast um AGS en hvad verdur um okkur ef vid flæmum AGS fra okkur og lanin dregin tilbaka,. Thad er oft vitnad i Noreg, en Noregur hefur kreppu alveg eins og vid, en thad sem their hafa framyfir okkur er ad their hafa gildan oliusjod upp a 1000 til 2000 miljonir NKR til ad redda ser, svo su vidmidun er ekki raunhæf.  Ef vid lækkum vextina of hratt ta kjemur verdbolgan til ad fljuga til himins og kronan verda ad engu og vid erum had sterkri kronu til koma okkur ut af thessari klipu. Island er eins og hver annar skuldunautur sem verdur ad borga sinar skuldir! Eftir hallæri kjemur godæri og thad er upp til okkar allra hvad fljott thad kjemur, svo vinnum saman thad gerir okkur sterk. Audvitad thurfum vid ad fa inn thessa aura sem nokkrar fjølskyldur hafa stolid undan og falid i skattaparadisum hingad og thangad,en a medan verdum vid ad brjotast a moti storminum thvi sundradir tøpum vid en sameinadir vinnum vid!! Hef mikla tru a Evu joly og hvers hun her megnud, hun hefur sporad upp fjarglæframenn og konur fyrir Frakland og Noreg og eg efast ekki um ad hun klarar thad fyrir okkur lika, en thad tekur sinn tima. Lesid um hana a netinu og sjaid hvad hun hefur fengid til, hun er bædi elskud og høtud af storum fyrirtækjum sem hun hefur afhjupad.

Gledilegt sumar kjæru landsmenn.

Halldór Jón Júlíusson, 4.6.2009 kl. 10:57

3 identicon

Þurftum við norskan snilling til að stýra Seðlabankanum? Af hverju þurftum útlending? Gátum við ekki fundið einhvern atvinnulausan Íslending sem AGS stýrir hvort eð er? Það er endanlega ljóst að ríkisstjórnin ræður engu. Hvorki fjármálum né utanríkismálum. AGS stýrir fjármálum og Kínverjar utanríkismálum. Og ráðherrar eins og Össur flýja land til að míga gælandi og vælandi utan í EBS og forsætisráðherra hverfur en þegar hún finnst þá talar hún um að staða heimilanna sé bara ekki eins slæm og allir vilja vera láta. Þá vitum við það. Þeir sem kusu þetta fyrirbæri hljóta að vera ánægðir.

Helgi (IP-tala skráð) 4.6.2009 kl. 15:30

4 Smámynd: Halldór Jón Júlíusson

Ekki vera svona reidur Helgi, thad er ekki hollt fyrir heilsuna. EF thu hefur lausnina a kreppunni tha ættir thu endilega ad segja fra thvi tha ert thu einstakur madur med ovenjulega hæfileika sem ekki er øllum gefid

Halldór Jón Júlíusson, 4.6.2009 kl. 15:46

5 Smámynd: Axel Jóhann Axelsson

Stýrivextir hljóta að eiga að miðast við verðbólguna eins og hún er á hverjum tíma og hvaða væntingar eru gerðar til framtíðarinnar.  Tólf mánaða verðbólga reiknuð aftur í tímann, segir nákvæmlega ekkert um það við hverju má búast á næstu mánuðum.

Vísitala neysluverðs hefur hækkað úr 327,9 stigum í janúar 2009 í 339,8 stig fyrir júlímánuð.  Þetta er 3,63% hækkun á sjö mánuðum og verði verðbólguhraðinn svipaður til áramóta, má gera ráð fyrir að verðbólga ársins 2009 verði um 6%.  Seðlabankinn áætlar sjálfur að verðbólgan verði komin niður í 2,5% í byrjun næsta árs.  Að halda stýrivöxtum í 12% við þessar aðstæður er hreint brjálæði og ekkert annað.

Stýrivextir Evrópska seðlabankans eru 1% og verðbólga í ESB löndum að meðaltali 3,6%.  Þeir hafa vit á því í Evrópu, að hafa vextina lága, til að reyna að örva efnahagslífið, en hér reynir ríkisstjórnin og seðlabankinn að drepa allt, sem ekki er þegar dautt, með hreinu vaxtaokri.

Hins vegar skal taka undir það með þér, að þakka skal á hverjum morgni fyrir krónuna, enda er hún að bjarga því sem bjargað verður í kreppunni hérna.

Vaxtastefnan er aftur á móti ekki að bjarga neinu, heldur gerir hún það gagnstæða.

Axel Jóhann Axelsson, 4.6.2009 kl. 16:56

6 Smámynd: Páll Vilhjálmsson

Sæll Axel Jóhann, síðasta stóra mælingin á verðbólgu gaf á annan tug prósenta. Ég rengi ekki athugun þína. Kannski er spurningin að gefa þessu einhverjar vikur til að jafna sig. Svo er á hitt að líta að ef bratt verður farið í lækkun mun krónan falla.

Í Bandaríkjunum og Evrópu er verið að gera hagfræðilegar tilraunir með lága vexti til að auka eftirspurn og komast hjá verðhjöðnun, sem nokkuð víðtækt samkomulag er um að sé verri en verðbólga. 

Páll Vilhjálmsson, 4.6.2009 kl. 17:41

7 Smámynd: Svala Jónsdóttir

Jæja, þar kom að því að við Páll urðum sammála um eitthvað. :)

Verðbólgan í maí mældist 1,13% eða nálægt 14% á ársgrundvelli. Við þær aðstæður er þessi ákvörðun skiljanleg.

Vissulega er erfitt að búa við þessa stýrivexti, en á hinn bóginn er líka erfitt að búa við aukinn verðbólguhraða og mögulegt hrun krónunnar.

Svala Jónsdóttir, 4.6.2009 kl. 20:39

8 Smámynd: Páll Vilhjálmsson

Já, Svala ég fann það á mér að það kæmi að þessu; að við yrðum sammála.

Páll Vilhjálmsson, 4.6.2009 kl. 20:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband