Loftslagið, Trump, Merkel og Sigmundur Davíð

New York Times segir leiðtoga repúblíkana í Bandaríkjunum líta á heimsendaspár vegna loftslagsbreytinga sem falsvísindi. Innbyggt í flestar útgáfur heimsendaspámennsku eru tvær forsendur. Sú fyrri er að maðurinn beri höfuðábyrgð á hlýnun jarðar og sú seinni að með alþjóðlegum aðgerðum sé hægt að koma í veg fyrir hlýnun og bjarga þar með siðmenningunni.

Efasemdir eru um báðar forsendurnar. Sögulegar heimildir eru um að loftslag á jörðinni ýmist kólnaði eða hlýnaði löngu áður en mannanna verk skiptu þar nokkru máli. Reikningar vegna kostnaðarins við að draga úr hlýnun gefa ekki til kynna að dýrar aðgerðir breyti miklu. Ágúst H. Bjarnason reiknar og Björn Lomborg reiknar líka. Í hvorugu tilfellinu svarar kostnaði að breyta loftslaginu með beinum inngripum.

Svo er það stóra spurningin, sem enginn getur svarað: hvert er eðlilegt meðalhitastig jarðarinnar? Er yfir höfuð til eitthvað æskilegt meðalhitastig fyrir jörðina alla?

En vísindin, hvort sem þau eru fals eða ekki, eru aðeins hluti umræðunnar. Loftslagsumræðan er hápólitísk, eins og skýrt kom fram þegar Trump afturkallaði skuldbindingar Bandaríkjanna við Parísarsáttmálann. Flestir leiðtogar vestrænna ríkja notuðu tækifærið til að slá pólitískar keilur - sýna Bandaríkjaforseta óalandi og óferjandi.

Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, er oft stillt upp sem andstæðu Trump. Merkel er allt sem Trump er ekki: ábyrg, raunsæ og kann pólitík. En þá ber svo við að íhaldsmenn í hennar eigin flokki, CDU, biðja kanslarann vinsamlega að athuga hvort ekki séu jákvæða þætti að finna í hlýnun jarðar.

Samkvæmt Spiegel telja íhaldsmenn í stjórnarflokki Þýskalands að jákvæðar afleiðingar gætu til dæmis verið auknar fiskveiðar, samgöngur með opnun norðvesturleiðarinnar og aðgangur að náttúruauðlindum.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson leyfði sér að nefna jákvæða þætti í umræðunni um loftslagsmál fyrir skömmu og var úthrópaður.

Löngum er erfitt að vera spámaður í eigin föðurlandi. Kannski að Sigmundur Davíð fái um síðir þá upphefð að vera meðalhófið milli Trump og Merkel. Ekki lítill árangur það.


mbl.is Framfylgja samkomulaginu í trássi við Trump
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hörður Þormar

Sjónvarpsmaðurinn og eðlisfræðingurinn Harald Lesch með kennslustund í loftslagsvísindum:Harald Lesch: Der Klimawandel [ZDF]

Hörður Þormar, 5.6.2017 kl. 11:41

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Málinu er yfirleitt aldrei stillt upp í fullri heild. Vinnanlegt jarðefnaeldsneyti jarðar er takmörkuð auðlind og til lengri tíma litið augljós hagur af því að milda höggið af því þegar það gengur til þurrðar. 

Súrnun sjávar er einnig aldrei nefnd. 

Ómar Ragnarsson, 5.6.2017 kl. 12:16

3 Smámynd: Guðmundur Böðvarsson

Ástralskir blaðamenn fóru að athuga hvað hefði orðið um 1 Trilljón Ástralíudali sem er búið að innheimta í skatta til að berjast gegn hlýnun jarðar, en fundu bara 2 hillukm.af skýrzlum og slatta af ráðstefnum...

Guðmundur Böðvarsson, 5.6.2017 kl. 12:28

4 identicon

Merkel "ábyrg" ? Hvaða fáviti, á þessari jörð er svo skyni skorinn, og vitgrannur að hann kallar þessa "meri" fyrir "ábyrga".  Er þetta ekki sama kerlingin sem sagði "oppnum allar gáttir" ... og er hún þar af leiðandi, ekki beinlýnis ábyrg fyrir því blóðbaði sem á sér stað um alla Evrópu?

Stendur hún undir þessari "ábyrgð"?

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 5.6.2017 kl. 15:56

5 Smámynd: Óli Jón

Þegar útreikningar Björns Lomborg eru skoðaðir skal alltaf hafa í huga að hann reiknaði sér milljón dollara í laun árin 2012-13. Því má gera ráð fyrir að Lomborg, meðvitað eða ómeðvitað, reikni sig í átt að þeirri niðurstöðu sem stuðlar að áframhaldi slíkra greiðslna því þannig fiskar hann best á hjá þeim sem vilja borga kalli fyrir að halda uppi andófi sínu.

Síðan 2013 hafa ekki sést reikningar frá fyrirtæki hans, CCC, og sökum þess ekki hægt að sjá hvort kallinn hafi hækkað eða lækkað í launum eða þá hvaða aðilar styðja hann. En hann er væntanlega ágætlega haldinn því enn reiknar hann sig í sömu átt.

Óli Jón, 6.6.2017 kl. 15:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband