Sjálfstæðið, Evrópukirkjan og Pawel pakkavinur

Ísland hélt velli í fjármálakreppunni vegna þess að við hugsuðum sjálfstætt en létum ekki Evrópukirkjuna, sem tók við að þeirri kaþólsku, segja okkur fyrir verkum. Á þessa leið er greining írska fræðimannsins Cormacs Lucey.

Þrátt fyrir skýra og einboðna reynslu af bjargræði fullveldis er enn til á Íslandi átrúnaður á ESB-kirkjuvaldið. Einn andsetinn er þingmaður Viðreisnar, Pawel Bartoszek, sem líkir sambandinu við pakka. Til skamms tíma vildu ESB-sinnar ,,kíkja í pakkann" en Pawel er slíkur pakkavinur að hann þarf ekki að gaumgæfa innihaldið.

Forseti framkvæmdastjórnar ESB, Jean-Claude Juncker, líkir Evrópusambandinu við ástarsamband. Gamalt orðtak, ættað úr hreintrúarkirkjunni, segir að berja skuli börn til ásta. Írar voru barðir til ástar á ESB. Pawel finnst það í góðu lagi. Eins lengi og hann fær pakkann sinn.


mbl.is Sjálfstæðið lykillinn að árangri Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Pawel Bartoszek, kjörinn í haust alþingismaður Reykjavíkurkjördæmis suður fyrir Viðreisn, var í fram­kvæmda­ráði öfugmælasamtakanna "Já Ísland!" a.m.k. 2015-16, sat (sennilega sem einn af Trójuhestum ESB-innlimunarsinna) í hinu ólögmæta stjórnlagaráði, sem samþykkti billega leið (í sinni 111. gr.) til að koma Íslandi hratt inn í Evrópu­sambandið, en batt um leið svo um hnútana í sinni 67. gr., að þjóðin fengi ekki að krefjast þjóðar­atkvæða­greiðslu um að ganga úr stórveldinu!

Pawel er nú m.a. í alls­herjar- og mennta­mála­nefnd, 1. varaform. umhverfis- og samgöngu­nefndar og situr í Íslandsdeild þings Öryggis- og samvinnu­stofnunar Evrópu (ÖSE). 

Jón Valur Jensson, 22.3.2017 kl. 03:22

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Þegar manni liggur rosalega mikið á hjarta,er sá kostur vænstur að pakka dótinu inn og senda pakkamála'deildarstjóra,í stað þess að speða því út á netinu því þar eru á gægjum njósnarara úr hatursumæladeild.

Best að fara varlega með eldfimt efni.   

Helga Kristjánsdóttir, 22.3.2017 kl. 06:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband