Sýrlandi, Írak skipt upp; Kúrdaríki

Innrás Bandaríkjanna í Írak 2003 og stuðningur þeirra við uppreisnarmenn í Sýrlandi hratt af stað atburðarás sem leiða mun til uppskiptingar á þessum ríkjum.

Ríki íslams er sameiginlegur óvinur þeirra þriggja stóru aðila sem mest láta sig skipta framvindu mála: Bandaríkin, Rússland og Tyrkland. Kúrdar, sem búa í norðurhéruðum Írak, Sýrlands og suðurhluta Tyrklands eru í laustengdu bandalagi við Bandaríkin og Rússland en svarnir óvinir Tyrkja, sem óttast að nýtt Kúrdaríki taki land af þeim.

Bandarískur sérfræðingur í málefnum miðausturlanda, Joshua Landis, hvetur Bandaríkin til að styðja fremur Kúrda en Tyrki til að ráðast í síðasta höfuðvígi Ríkis íslam, Raqqa. Tyrkir og bandamenn þeirra úr röðum súnni-múslíma keppa við Kúrda um að frelsa Raqqa. Þótt Tyrkir eigi að heita í liði Bandaríkjanna, sem Nató-þjóð, eru þeir grunaðir um að vilja fremur að herskáir súnni-múslímar, sömu ættar og Ríki íslams, verði öflugir á svæðinu en að vegur Kúrda vaxi.

Stríðsátökum í miðausturlöndum er hvergi nærri lokið.


mbl.is Lykilhlutverk Rússa eftir loftárásir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Vonandi verða Kúrdar ekki sviknir. Þeir hafa verið staðfastur í baráttu sinni gegn ISIS ólíkt Tyrkjum.

Ragnhildur Kolka, 21.3.2017 kl. 08:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband