Barnasprengja múslíma í Evrópu

Múslímavæðing Evrópu gengur fram ef múslímakonur í álfunni eignast fimm börn, segir Erdogan Tyrklandsforseti. Þýskir fjölmiðlar taka áskorun Tyrklandsforseta alvarlega enda snertir hún viðkæman streng.

Evrópskar konur eiga að meðaltali rúmlega eitt barn hver. Ef þær múslímsku eignast fimm verður Evrópa múslímsk innan fárra kynslóða. Eyjan segir frá pælingum um væntanlegt trúarstríð í kjölfarið.

Tyrkland er múslímskt ríki sem reyndi að veraldarvæðast fyrir einni öld. Þegar forseti landsins hótar múslímavæðingu Evrópu þrem kynslóðum seinna staðfestir það hið augljósa: múslímar aðlagast ekki vestrænni veraldarhyggju.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Þetta styður skoðum mína sem er að Erdogen verður á undan ISIS mönnum að ná Evrópu undir sig og þar með verður Evrópa múslímskt ríki þá á ég við Portúgal,Spán, Frakkland og Þýskaland.

Þessi ríki kolfalla og eru í raun fallin.. 

Valdimar Samúelsson, 18.3.2017 kl. 11:02

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Góður er pistillinn, Páll. Afgerandi sigrar vinnast ekki aðeins með vopnum. Kristindómurinn lagði undir sig Evrópu, að miklu leyti án vopna. Islam mætti á sviðið sem ráðandi afl í Mið-Austurlöndum, Norður-Afríku og víðar við Miðjarðarhaf austan- og vestanvert, fór að mestu um með valdi sverðsins og myndaði eitt mesta heimsveldi sögunnar.

En Erdogan sér þetta rétt. Það sama hafði Ghaddafi gert með sinni forspá. Geldneytin, sem kalla mætti í Evrópu, virðast ætla að gefa islam sigurinn eftir. Það tekur þá ekki margar kynslóðir, ef viðnámið verður ekkert.

Jafnvel þótt múslimskar konur taki ekki allar því kalli að eignast fimm börn hver, kemur annað á móti: að þær byrja miklu fyrr en evrópskar konur að eignast sín börn, strax upp úr 16 ára aldri, en evrópskar nálgast nú 30 ára aldurinn að meðaltali í fyrstu barneignum. Einnig þetta stuðlar að margföldun múslimska þjóðamassans (hefur t.d. sýnt sig ótrúlega hratt í Egyptalandi frá því um 1900) og hraðar enn meir yfirburðum hans yfir evrópsku þjóðirnar, sem allmargar eru nú komnar undir "replacement level" vegna fárra fæðinga: fer sem sé fækkandi og með mun stórstígari hætti eftir 15-25 ár, þegar saxa fer hratt á hina fjölmennu "baby boom"-kynslóð eftirstríðsáranna.

Samvizka Evrópu má horfa til óneitanlegra glæpa sinna með milljónatuga-fósturvígum síðustu 40-50 ára.

Afturhvarfs er þörf, iðrunar og yfirbótar. Kristindómurinn, með heilnæmri, heilbrigðri kenningu sinni, var allan tímann með orð sannleikans í þessum efnum og það sem þjóðunum, okkur öllum, var í raun fyrir beztu. 

Virðum ófædda lífið, þá virðum við lögmál Skapara okkar. Leyfum honum þannig að vernda þessar þjóðir og umfram allt börnin okkar og aðra afkomendur, að þau megi áfram búa við trygga tilveru.

Jón Valur Jensson, 18.3.2017 kl. 12:07

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ekki vantar að kynlífið sæki mjög á vestrænar þjóðir, að miklu leyti undir formerkjum sjálfselskrar nautnahyggju. En nautnahyggja byggir ekki upp þjóðir. Kynlífið er verðmætt gildi, en þar til heyrir sönn umhyggja og ábyrgð. Um það er hjónabandið fagur rammi, en hvert barn er þó ómetanlega mikils virði.

Jón Valur Jensson, 18.3.2017 kl. 12:25

4 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ummæli Erdogans staðfesta það sem við andstæðingar Íslamsmyrkursins hafa alltaf haldið fram. Flóttamannastraumurinn frá múslimalöndunum er innrás og markmiðið er yfirtaka. Nú skil ég ekki hvernig fjölmenningarsinnarnir geta mótmælt. Þeir ættu núna að skammast sín, steinþegja og hætta að þvælast fyrir þeim sem eru að reyna að bjarga Vesturlöndum frá þessari vá.

Theódór Norðkvist, 18.3.2017 kl. 13:26

5 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Við megum heldur ekki gleyma þeim sem eru að FlÝJA islam og þrá að komast í annað umhverfi!

Kolbrún Hilmars, 18.3.2017 kl. 13:57

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

En þeir flýja hvorki til Saudi-Arabíu, þar sem nóg er plássið og auðurinn, né til Japans eða Ástralíu, þú tekur eftir því, Kolbrún!

En glöggur er Theódór sem fyrri daginn.

Jón Valur Jensson, 18.3.2017 kl. 14:48

7 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Það má bremsa þetta af með því að greiða aðeins bætur með þremur börnum hjóna.

Ragnhildur Kolka, 18.3.2017 kl. 14:58

8 Smámynd: Elle_

Þetta er nú alveg rétt hjá Kolbrúnu, en Theódóri líka um flóttamannastrauminn og Islammykrið og hina miklu vá. Við megum ekki gleyma þeim samt sem eru í alvöru að flýja hættu og Islammyrkrið. 

Elle_, 18.3.2017 kl. 15:20

9 Smámynd: Elle_

Við það má bæta í sambandi við fósturdráp. Það væri frá mínum bæjardyrum MIKLU gagnlegra að tala um það bara eins og hryllileg dráp og pyntingar á bjargarlausum ófæddum börnum og sleppa alveg guðum og sköpurum.   

Elle_, 18.3.2017 kl. 20:03

10 Smámynd: Elle_

Við hvaða kristnu síonista varstu að tala?

Elle_, 19.3.2017 kl. 17:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband