Heimsmet vinstriflokkanna: umboðslausir fyrir OG eftir kosningar

Fáum við borgaralaun Pírata, ESB-stefnu Samfylkingar, fjallagrasastefnu Vinstri grænna eða opin landamæri Bjartar framtíðar? Engin veit út á hvað stjórnarsáttmáli vinstriflokkana gengur en samt eru þeir búnir að mynda ríkisstjórn fyrir kosningar.

Hvergi á byggðu bóli dytti kosningabandalagi margra flokka að bjóða fram ríkisstjórn án málefna. Þetta þýðir að vinstrabandalagið er umboðslaust bæði fyrir og eftir kosningar. Enginn veit nema þröng klíka í hverjum flokki hvaða málefni viðkomandi flokks eru ógild fyrir kosningar og ekki einu sinni flokksforystan veit út á hvað ríkisstjórnarsamstarfið á að ganga.

Það er heimsmet að nýmynduð ríkisstjórn sé bæði umboðslaus fyrir og eftir kosningar.


mbl.is Enginn sáttmáli fyrir kosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Átti þetta ekki að vera til að fólk gæti gengið upplýst til kosninganna á laugardaginn?  EN SVO FÆR ENGINN AÐ VITA HVAÐ FÓR ÞARNA FRAM????? undecided

Jóhann Elíasson, 25.10.2016 kl. 20:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband