Ríkisstjórn allra stétta

Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks gerir meiri breytingar á lífeyriskerfinu en sést hefur frá tilurð þess. Jöfnun réttinda launafólks í opinberum störfum og á almenna vinnumarkaðanum til lífeyris verður fylgt eftir með jafnaðarstefnu í launamálum þessara hópa.

Ríkisstjórnin vinnur breytinguna í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins sem í áratugi hafa sett jöfnuð lífeyris á oddinn.

Ríkisstjórn allra stétta hlýtur að fá endurnýjað umboð frá þjóðinni við næstu þingkosingar. Allt annað er glapræði.


mbl.is Eitt lífeyriskerfi fyrir allt launafólk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrossabrestur

Góð breyting á lýfeyriskerfinu, ætti ekki að fara alla leið og sameina alla lýfeyrissjóðina í einn, það myndu sparast margir árs-lýfeyrir venjulegs fólks á móti launum allra forsjóra, skrifstofustjóra osfrv. þegar það þyrfti bara einn af hverjum á móti öllum fjöldanum sem er í dag.    

Hrossabrestur, 19.9.2016 kl. 17:41

2 Smámynd: Hrossabrestur

hrossabresturinn fór fram úr sér að vanda, þetta á að vera lífeyrir en ekki lýfeyrir, biðst velvirðingar þessu.

Hrossabrestur, 19.9.2016 kl. 17:43

3 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Auk þess til fyrirmyndar að eyða lífeyrisskuldbindingum hins opinbera með því að ganga frá greiðslum á þeim fortíðar 90 milljörðum nú.  Alls ekki sanngjarnt að velta þeim skattabagga á næstu kynslóðir.

Kolbrún Hilmars, 19.9.2016 kl. 18:13

4 Smámynd: Sigfús Ómar Höskuldsson

..."Ríkisstjórn allra stétta hlýtur að fá endurnýjað umboð frá þjóðinni við næstu þingkosingar." ..... Er skaupið snemma í ár....

Þvílíkt bull hér á ferð.

Sigfús Ómar Höskuldsson, 19.9.2016 kl. 19:50

5 Smámynd: Steindór Sigurðsson

Við skulum spyrja að leikslokum. Ef ég þekki það rétt verður það einhver "Bastarður" sem kemur útúr þessu.

Steindór Sigurðsson, 20.9.2016 kl. 02:44

6 Smámynd: Jón Bjarni

ÞEssi vinna hófst með samkomulagi árið 2009 Páll

Jón Bjarni, 20.9.2016 kl. 14:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband