Stundin veitir áfallahjálp - mótmælendur fá nafnleynd

Stundin er miðill mótmælenda. Það sést á efnistökum ritstjórnar og núna á þeirri áfallahjálp sem Stundin veitir mótmælendum sem eiga yfir höfði sér málssókn. Stundin var fyrst með fréttina að mótmælendur í Hlíðarendamálinu fengu bréf frá lögmanni sem sækir mál af þessu tagi, Vilhjálmi H. Vilhjálmssyni. Stundin skrifar

Kröfurnar sem Stundin hefur undir höndum hljóða allar uppá opinbera afsökunabeiðni, að ummæli verði dregin tilbaka auk greiðslu skaðabóta. Skaðabótakrafan hljómar allt frá einni milljón króna á hvorn skjólstæðing Vilhjálms, auk lögfræðikostnaðar, til þriggja milljóna á hvorn skjólstæðing Vilhjálms, auk lögfræðikostnaðar. Þá er viðtakendum bréfanna gefin frestur til mánudagsins 2. maí ellegar gætu þeir átt von á að vera sóttir til saka.

Blaðamaður ræddi við fjóra einstaklinga sem fengu slíka kröfu frá Vilhjálmi og öllum var mjög brugðið. Ein lýsti því  sem hálfgerðu áfalli. Hún hafði fengið bréfið í almennum pósti í dag.

Hlíðarendamálið snýst um að múgsefjun fjölmiðla eins og Stundarinnar og Fréttablaðsins leiddi mótmælendur út í aftöku á æru manna sem nú leita réttar síns. Mótmælendur stigu á stokk og höfðu í frammi svigurmæli sem þarf að svara fyrir löngu eftir atburðinn. Ritstjórn Stundarinnar stendur mótmælendum nærri og talar við fjóra þeirra undir merkjum nafnleyndar.

Mótmælendurnir voru ekki nafnlausir þegar þeir herjuðu á piltana tvo í Hlíðarendamálinu. Múgæsing samtímans skilur eftir sig rafræn spor sem menn eins og Vilhjálmur H. þefa uppi og snara með lögum.

Þeir sem nú hírast nafnlausir í áfalli í skjóli Stundarinnar voru keikir mótmælendur þegar kallið kom um að níða æruna af tveim strákum sem stóðu vel til höggsins. Í stað þess að veita áfallahjálp ætti Stundin að byrgja brunninn áður en blessuð mótmælabörnin detta ofan í hann. Það mætti gera með leiðbeiningum til fólks með mótmælalöngun. Stutta útgáfan væri svona:

Skotspónn mótmælenda er vanalega einhver sem ekki getur svarað fyrir sig. Ígrundaðu hvers vegna áður en þú lætur etja þér á foraðið.

Auðvitað eru slíkar leiðbeiningar tilgangslausar. En það væri meiri reisn yfir fjölmiðlum að tileinka sér yfirvegun í stað þess að vera fíflin í foraðinu.

 


mbl.is Krefjast opinberrar afsökunarbeiðni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Stundin lætur ekki standa a sér þegar kemur að æsa múrinn, en Hlutur Fréttablaðsins hlýtur að fá sérstaka meðhöndlun svo groddalegur sem hann var. Í fámenninu hér er það ábyrgðarhlutur að æsa fólk upp. Ekki hvað síst í andrúmslofti pólitískrar rétthugsunar sem hér ríkir.

Ragnhildur Kolka, 30.4.2016 kl. 10:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband