RÚV minnkar, 365 miðlar vaxa

RÚV flæddi dymbilvikuna með einnar heimildar ,,fréttum" þar sem þingmenn stjórnarandstöðu fengu að úttala sig um fjármál eiginkonu forsætisráðherra. Viðtöl við þá sem báru blak af forsætisráðherra voru afflutt þannig að viðmælendur urðu að skrifa bloggfærslur til leiðréttingar.

Toppurinn hjá RÚV var fréttin með Svandísi Svavarsdóttur þingmanni Vinstri grænna þar sem hún sagði efnahagslegt fullveldi landsins í hættu vegna bankareiknings eiginkonu forsætisráðherra.

Öllum mátti vera ljóst að RÚV stundar pólitík ekki fréttamennsku í málinu. Þegar Sigmundur Davíð og Anna Sigurlaug tóku saman greinargerð til að svara ásökunum gerði RÚV þau viðbrögð tortryggileg.

365 miðlar sýna meiri fagmennsku en RÚV í fréttaflutningi af þessu máli.


mbl.is Líklega rætt á þingflokksfundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Toppfréttin virkar í eyrum sem í klukkuspili,eða páku í lokakafla hljómseitar,búið spil.Nennumessu hangsi ekki,Íslendingar elska sjálfstæðið sitt. 
  

Helga Kristjánsdóttir, 29.3.2016 kl. 05:03

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

PR sálfræðin segir að ef þú hefur eitthvað umdeilanlegt í farteskinu - best að skýra sjálfur frá og vera á undan hýenunum. Þeir taka samt aldrei fram að þetta ráð dugir ekki ef Framsókn eða Sjálfstæðisflokkur eiga í hlut.

Það er kjarninn í hræsni vinstrimanna.

Ragnhildur Kolka, 29.3.2016 kl. 09:50

3 Smámynd: Jónas Gunnlaugsson

Það var talað um hirðmenn konunga hér áður fyrr.

Eru hirðmenn Evrópusambandsins búnir að koma sér fyrir sem yfirmenn í RÚV, Ríkisútvarpinu?

Ert þú að segja okkur það?

Löglega kjörin stjórn í Póllandi setti reglu á hirðmenn ESB í Pólskum fjölmiðlum.

Var það RÚV Póllands?

Þá sagði einhver RÚV-arinn í Póllandi upp og sagðist ekki vinna undir stjórn Ríkisins, undir stjórn löglegrar stjórnar Póllands.

Þá sagði íslenska Ríkisútvarpið eitthvað á þá leið að, nú er ég ekki með setningarnar, að þarna væri þessi, ekki nóg góð stjórn að mér heyrðist,  að skipta sér af Pólsku RÚV-urunum.

Var Pólska stjórnin að reyna að koma böndum á hirðmenn ESB í ríkis fjölmiðlum?

Gott ef ekki voru notuð einhver orð eins og nasistar, rasistar.

Við skulum allir reyna að bæta okkur.

Við höfum fylgst með því hvernig Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, hefur leitt þjóð sína í baráttu gegn fjármálakerfinu.

Kerfið setti „KREPPUFLÉTTUNA“  Kreppufléttan, endurtekið sem er hönnuð til að hirða allar eignir frá landsmönnum.

SDG snéri tapi Íslands í sókn, og er Ísland nú í betri stöðu efnahagslega en oftast áður.

Við verðum að sjálfsögðu að breyta öllu regluverkinu til að  ekki sé hægt að ræna fólkið aftur með þessu fjármálakerfi.

Nú sækja ýmsir að SDG og trúlega er ánægja þeirra sem urðu að skila miklu af ránsfengnum, mikil.

Nú hættum við að reyna að særa „Riddarann hugum stóra sem barðist við drekann, og hafði hann undir.

Við sem höfum þjónað drekanum, temjum dreka svo að hann verði eins og ljúfasta gæludýr.

Skoða betur

Egilsstaðir, 29.03.2016  Jónas Gunnlaugsson

Jónas Gunnlaugsson, 29.3.2016 kl. 09:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband