Pútín skrefi á undan samsæriskenningum

Bandarísk yfirvöld og vinir þeirra í Nató eru  í lausu lofti eftir að Pútín Rússlandsforseti ákveður að skera niður herstyrk Rússa í Sýrlandi.

Með töluverðri fyrirhöfn reyndu Bandaríkin og Nató-þjóðirnar að mála fyrirætlanir Pútín í Miðausturlöndum sem lið í endurnýjaðri heimsyfirráðastefnu Rússa.

Heimköllun rússnesks herafla frá Sýrlandi gæti raunar verið merki um baktjaldasamninga við Bandaríkin um framtíð Úkraínu. Vegir stórveldanna í alþjóðastjórnmálum er órannsakanlegir. Hvort sem það er tilfellið eða ekki verður að hanna nýja samsæriskenningu um Pútín.


mbl.is Rússar hverfa frá Sýrlandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Kæri Páll.

Mestar líkur eru á að þú hafir hártrétt  fyrir þér í þessum pistli sem endranær ;)

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 14.3.2016 kl. 20:28

2 Smámynd: Kolbeinn Pálsson

Eitthvað var sagt á RT um að það hefði náðst að drepa marga Rússnesku-talandi ISIS menn sem myndu að öllum líkindum snúa sér að Rússlandi eftir að hafa fengið nóg af Sýrlandi.

Held reyndar að Pútín bíði síns færis og sé engan veginn búinn að jafna sakirnar við Erdogan apaköttinn!

Kolbeinn Pálsson, 14.3.2016 kl. 21:08

3 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Voru Rússarnir ekki að auka athafnasvæði sjóhers Rússa í hafnarborginni Tartus í Sýrlandi, ég man ekki betur en að ég hafi lesið það í The Moscow Times 15. September 2015.

Niðurskurður herafla Rússa hefur ekkert með flota stöðina að gera.

Pútín verður aldrei annað en úlfur í sauðagæru.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 14.3.2016 kl. 23:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband