Trump er amerískur Pútín

Donald Trump býður sig fram sem hörkutól sem á sig sjálfur, en er ekki fangi sérhagsmuna. Hann ætlar að gera Bandaríkin voldug á ný. Sigurræða hans í New Hampshire tíundaði óvini Bandaríkjanna: Kína, Mexíkó og Japan á sviði viðskipta en Ríki íslam er hernaðarlegur óvinur.

Trump minntist ekki einu orði á Rússland og Pútín, sem ríkisstjórn Obama keppist við að mála upp sem helstu ógn við heimsfriðinn.

Hörkutól dansa ekki, skrifaði Mailer. Trump sér bandamann í Pútín, kannski sem félaga í töffaraskap. Þeir koma jú í pörum, þótt þeir dansi ekki.


mbl.is Sannfærandi sigur Trump og Sanders
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

Það er rétt að Pútín er í dag helsta ógnin við heimsfriðinn. Pútín er stórhættulegur og gersamlega siðlaus maður með mikla valdagræðgi sem er nú þegar nánast búinn að afnema tjáningafrelsi í Rússlandi og er á góðri leið með að afnema þar lýðræði.

Sigurður M Grétarsson, 10.2.2016 kl. 17:37

2 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Trump slær um sig með frösum um að hann ætli að gera hitt og þétt verði hann kosinn. Það er hinsvegar fátt um svör þegar spurður hvernig hann ætlar að gera það. Þetta er sama framkoma og Jón Gnarr bauð uppá og við sjáum nú afleiðingarnar.

Ragnhildur Kolka, 10.2.2016 kl. 20:15

3 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Framtíðin verður skemmtilegri með Trump & Pútín.

Við vitum öll, höfum séð það, að Pútín gerir bara það sem honum sýnist.  Trump er vís til þess líka, sem er að vissu leiti jákvætt.

Og ég tek ekkert mark á þessari ræðu allri um að Pútín sé einhver sérstök ógn við heimsfriðinn.  Það stemmir ekki alveg.

Hverjir hafa verið að ýfa upp mestan ófrið undanfarið?

Bandaríkjamenn og *Frakkar!*

Ásgrímur Hartmannsson, 10.2.2016 kl. 22:05

4 Smámynd: Borgþór Jónsson

Þetta er alvarleg móðgun við Putin að láta svona út úr sér.

Trump og Putin eiga ekkert sameiginlegt.

Trump er tækifærissinnaður strigakjaftur án framtíðarsýnar.

Putin hugsar sína leiki oft mörg ár fram í tímann og er að fylgja plani sem hann tilkynnti um fyrir átta árum síðan ,við lítinn fögnuð Bandaríkjamanna.

Hann hefur fylgt þessu plani alla tíð og mér finnst líklegt að hann hafi sitt fram ,enda eru það ekki miklar mannvitsbrekkur sem hann er að eiga við.

Flestir okkar leiðtoga reyna alltaf að vinna með hnefunum frekar en hausnum.

Trump er samt að sumu leyti skárri en Hillary, sem er raðlygari og síbrotamaður.

Borgþór Jónsson, 11.2.2016 kl. 00:54

5 identicon

Sæll Páll

Það sem að Putin og Trump eiga sameiginlegt, er að þeir vilja eins og allur almenningur gera útaf við ISIS,Al-Nusra og/eða Al-Qeada þarna. 

En ríkisstjórnin hans Obama vill hins vegar stöðva Rússa í þessum hernaðraaðgerðum gegn ISIS,Al-Nusra og/eða Al-Qeada, því að annars hætta á því a Rússar vinni í "stríðinu gegn hryðjuverkum", og hvað eiga vopnaframleiðendur og Bankarnir að gera? 

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 11.2.2016 kl. 13:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband