ESB ekki lengur Evrópa

Evrópusambandið yfirtók álfuheitið Evrópa í þegar samrunaferli ESB-ríkjanna gekk hvað hraðast fyrir sig um og eftir aldamótin. Í samtali blaðmanns Die Welt við þýska stjórnmálafræðinginn Herfried Münkler dúkkar spurningin upp hvort Evrópa eða Evrópusambandið standi frammi fyrir breytinum.

,,Það er jú nokkur munur á Evrópu og Evrópusambandinu," segir blaðamaður og stjórnmálafræðingurinn samsinnir.

Münkler ráðgjafi þýska utanríkisráðuneytisins og með þekktari stjórnmálafræðingum landsins. Hann telur næstu tvö til þrjú árin leiða í ljós hvort Evrópusambandið eigi sér framtíð eða ekki. Münkler segir tvo möguleika fyrir ESB. Í fyrsta lagi kjarnasamstarf stofnríkjanna, Þýskalands, Frakklands, Ítalíu og Benelux-landanna. Í öðru lagi breiðari ESB undir forystu Frakklands og Þýskalands.

Hvor heldur útgáfan sem yrði ofan á er hugmyndin um Evrópusamband svotil allra landa álfunnar lögð á hilluna.

Viðtal Die Welt við Münkler er eitt dæmi af fjölmörgum þar sem reynt að semja nýja frásögn um Evrópusambandið. Rauður þráður í þessum tilraunum er að bjarga því sem bjargað verður af Evrópusambandinu. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Fyrir stuttu síðan var ég að fara í gegnum barnabækur í bókahillu, og fór þá að lesa smávegis í bók sem heitir: Atlas barnanna.

Bókin kom fyrst út hjá Dorling Kindersley, Bretlandi, 2003.

Á blaðsíðu 52 og 53 er fjallað lítillega um Niðurlönd (Belgía, Holland og Lúxemborg).

Þar stendur meðal annars:

Vissir þú...? Brussel er höfuðborg Evrópu. Þar eru Evrópusambandið og Evrópudómstóllinn til húsa.

Hvernig væri að komast niður á sannleiksplan barnabókmenntanna? Eða er þessi íslenskuþýddi Atlas Bretlands bara lygar og barnablekkingar-Atlas?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 28.7.2015 kl. 17:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband