Albaníu-Ásdís og Sjálfstæðisflokkurinn

Ásdís Halla Bragadóttir óskaði sér að íslenska heilbrigðiskerfið yrði líkara því albanska. Hún fékk vettvang hjá Samtökum atvinnulífsins fyrir þennan boðskap.

Albanía er það ríki í Evrópu og Asíu sem mismunar mest þegnum sínum m.t.t. heilbrigðisþjónustu. Ef Ásdís Halla fær einhverju ráðið verður íslenska heilbrigðiskerfinu breytt þannig að efnafólk fær læknisþjónustu, þeir efnaminni litla sem enga og einkafyrirtæki í heilbrigðisgeiranum græða samtímis á tá og fingri.

Ásdís Halla er skráð og númeruð í Sjálfstæðisflokkinn, var m.a. bæjarstjóri flokksins í Garðabæ. Ef Sjálfstæðisflokkurinn sér framtíð Íslands aðra en Albaníu ætti flokkurinn að halda sér í fjarlægð frá Ásdísi og albanska módelinu í heilbrigðisþjónustu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Páll - sem og aðrir gestir þínir !

Réttmæt samlíking: stutt á milli þeirra Tirana ráðamanna / sem og ''vina'' þinna í Valhöll (við Háaleitisbrautina - syðra):: hugmyndafræði lega, að minnsta kosti Páll minn.

Sama einka sukkara hugarfarið - á þeim slóðum báðum.

Hún tókst líka svo einkar ''vel'' - prívat væðingin á Landsbankanum og Búnaðarbankanum hérlendu / að ógelymdum Síldarverksmiðjum ríkisins á sínum tíma Páll minn.

Landsmenn - eiga eftir að kljást við eftirmála þeirra hörmunga / í langan tíma enn, síðuhafi góður.

Með beztu kveðjum - að Suðurlandi /

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 4.1.2015 kl. 21:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband