Hönnu Birnu-málið veit á dýpri skotgrafir

Pólitískt smámál, þar sem ein leka-fjöður varð að hænsnabúi, felldi Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra og varaformann Sjálfstæðisflokksins. Smámálið varð stórt vegna þess að nógu mikill liðssafnaður fjölmiðla, embættismana, vinstrimanna og aðgerðarsinna sá sér leik á borði að stökkva á haturslestina gegn Hönnu Birnu.

Engin prinsipp eða pólitísk meginmál voru í húfi í Hönnu Birnu-málinu, aðeins hrátt valdatafl.

Lærdómurinn af Hönnu Birnu-málinu er að íslensk pólitík hverfist nú um stundir ekki um meginhugmyndir heldur valdaskak þar sem samspil fjölmiðla og stjórnmála ræður úrslitum. Þau mál sem deilum valda eru lítilfjörleg, eins og lekamálið og stóra vélbyssumálið.

Tvær meginfylkingar deila í þessu valdaskaki: ríkisstjórnarflokkarnir annars vegar og hins vegar vinstriflokkarnir.

Í ljósi þróunar á fjölmiðlamarkaði, þar sem þekktur handlangri auðmanna, Björn Ingi Hrafnsson,er kominn til áhrifa er fyrirsjáanlegt að barátta meginfylkinganna verður harðvítugri en áður.

Auðmannapressan tekur ekki pólitíska afstöðu til meginfylkinganna. Verkefni auðmannapressunnar er að maka krókinn fyrir auðmenn. Á hinn bóginn þurfa báðar meginfylkingar stjórnmálanna á stuðningi auðmannapressunnar að halda, - auk annarra fjölmiðla.

Skotgrafahernaðurinn í íslenskri pólitík verður grimmur næstu árin, þangað til að önnur hvor meginfylking stjórnmálanna nær afgerandi forræði í landsmálum.


mbl.is Þjóðin læri af lekamálinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Lekinn var staðreynd og hefði getað verið bara ein "fjöður" í fjölmiðlum, meðal annars Morgunblaðinu, ef ekki hefði komið til viðleitni málsaðila og ráðherra til að eyða málinu, þræta fyrir að lekapósturinn kom innan úr ráðuneytinu og verða margsaga.

Þegar síðan fellur dómur heldur hinn sakfelldi áfram að vera margsaga um nýupplýst samskipti hans og lögreglustjórans á Suðurnesjum, sem nú er lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, af því að lögreglustjórinn, sem Hann Birna lét ekki í friði, flúði af þessum þokkalega vettvangi og stendur uppi sem eini aðili málsins, sem slapp frá því, - hafði vit á því að fórna stöðu sinni til að halda sóma sínum. 

Ómar Ragnarsson, 22.11.2014 kl. 10:47

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Forsætisráðherra varar við haturumsræðu.

Síðuskrifari hvetur til dýpkunar skotgrafa.

Skýtur sjálfan sig í fótinn í æðibunugangnum.

Guðmundur Ásgeirsson, 22.11.2014 kl. 12:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband