Tvöfeldni ASÍ og launin í landinu

Alþýðusamband Íslands er beggja vegna borðsins í launaumræðunni. ASÍ tilnefnir stjórnir lífeyrissjóðanna til helminga á móti Samtökum atvinnulífsins. ASÍ er að því marki fulltrúi atvinnurekenda sem  lífeyrissjóðirnir eiga fyrirtækin.

Lífeyrissjóðirnir eru ráðandi í mörgum stærstu fyrirtækja landsins, til dæmis Högum og Icelandair. Hvað er að frétta af launastefnu ASÍ í stærstu fyrirtækjum landsins?

Yfirlýsinga ASÍ um stéttastríð í landinu vegna launamisskiptingar er ekki trúverðug þegar verkalýðshreyfingin er eins og hundur í bandi forstjóranna.


mbl.is Mæta misskiptingu með afli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Stéttafélögin skipa í sjóðina sem vinna svo gegn hagsmunum almennings.

Óskar Guðmundsson, 18.8.2014 kl. 08:12

2 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Já Páll þessi staða er alveg ótrúleg og löngu komin tími á að hrista upp í þessu og fara að koma með kjör sem eru almenningi að gagni. Þessi launamunur á milli stétta er vaxin úr allri skynsemi og þessi kjör sem er verið að bjóða hinni venjulegri vinnandi hönd eru ekki til sóma...

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 18.8.2014 kl. 08:18

3 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Ég er reyndar með "járn í eldinum" til að ná fram ályktun (varðandi margfeldis-þak  og launaskiptingu) á komandi ASÍ-þingi.... fái ég að sitja fyrir mitt félag.

Óskar Guðmundsson, 18.8.2014 kl. 16:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband