Sökudólgarnir eru ESB-sinnar

Jóhanna Sig. sjálf og ríkisstjórn hennar ásamt talsmönnum ýmsum úr röðum ESB-sinna vildu að íslenskur almenningur borgaði skuldir óreiðubanka. Tilgangurinn helgaði meðalið; fyrir öllu var að kaupa frið hjá Evrópusambandinu.

Ólafur Ragnar Grímsson forseti og þjóðin sem felldi í tvígang Icesave-samninga ríkisstjórnarinnar eru sigurvegarar málsins.

Verða ekki ábyggilega birtar heilsíðuauglýsingar frá ESB-sinnum þar sem þeir biðjast afsökunar?


mbl.is Eigum ekki að leita sökudólga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nei nú halda þeir áfram að segja okkur þjóðrembur og slíkt.  Þetta fólk kann ekki að skammast sín.  Jóhanna vill ekki leita sökudólga, Össur og Árni Þór segja einungis að það hafi verið dómstólar og lögfræðingar sem séu sigurvegararnir.  En geta ekki viðurkennt það að forsetinn bjargaði mestu þarna ásamt þjóðinni sjálfri.  litlir karlar sem þetta fólk getur verið.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.1.2013 kl. 12:58

2 Smámynd: Óli Már Guðmundsson

Hvað með formann sjálfstæðisflokksins og marga aðra úr þeim flokki sem vildu endilega samþykkja seinasta samninginn.

Óli Már Guðmundsson, 28.1.2013 kl. 13:08

3 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Óli Már það segir bara það,að sumir í stjórnarandstöðunni eru ekki nógu harðir í andstöðu sinni gegn ruglinu í ríkisstjórninni.

Ragnar Gunnlaugsson, 28.1.2013 kl. 13:15

4 Smámynd: Sigríður Jósefsdóttir

Jóhanna Sigurðardóttir á að sjá sóma sinn í því að biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt strax í dag.

Sigríður Jósefsdóttir, 28.1.2013 kl. 13:26

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Já Sigríður,það hefði Stína stuð gert, Strax í dag!!

Helga Kristjánsdóttir, 28.1.2013 kl. 13:30

6 Smámynd: Kjartan Sigurgeirsson

Nú er liðið sem lagði hart að þjóðinni að bugast fyrir "blackmailnu" hálf grátandi af réttlátri reiði yfir því að nokkurt mannsbarn hafi látið sér til hugar koma að Íslenska þjóðin bæri ábyrgð á mistökum fjárglæframanna! Kann þetta lið ekki að skammast sín og læðast með veggjum þegar upp kemst um heimsku þeirra? 

Kjartan Sigurgeirsson, 28.1.2013 kl. 13:32

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nei Kjartan það kann greinilega ekki að skammast sín.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.1.2013 kl. 13:40

8 Smámynd: Birgir Örn Guðjónsson

Og hugsa sér.

Davíð sagði í kastljósviðtalinu sem gerði allt vitlaust:

Við munum ekki borga fyrir glæpamenn !

Og það stóðst.

Birgir Örn Guðjónsson, 28.1.2013 kl. 13:44

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Sagði hann ekki; "við borgum ekki skuldir óreiðumanna"

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 28.1.2013 kl. 13:47

10 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Lengi lifi Davíð Oddsson, hann hefur alltaf rétt fyrir sér.

Kveðja frá Las Vegas

Jóhann Kristinsson, 28.1.2013 kl. 18:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband