Hægri hönd Jóns Ásgeirs styður Össur

Jón Ásgeir Jóhannesson Baugstjóri fjármagnaði Samfylkinguna og notaði margar kennitölur til þess - til að hylja sporin. Líkt og nú var Össur Skarphéðinsson innsti koppur í búri Samfylkingar.

Hægri hönd Jóns Ásgeirs var Sigurður G. Guðjónsson lögmaður, sem m.a. sat í stjórn Íslandsbanka fyrir Jón Ásgeir.

Sigurður G. styður Össur í prófkjöri Samfylkingar. Ekki er vitað hvort fleiri en ein kennitala komi við sögu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vinstri hönd Sigurjóns Árnasonar. Hvernig tekst þér að gleyma Landsbankanum og Sjálfstæðisflokknum Páll. Eina ferðina enn.

http://www.dv.is/frettir/2009/6/14/sigurdur-g-eg-veit-bara-ekkert-um-thetta/

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 15.11.2012 kl. 12:22

2 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Skankastjórnun fingralangra!!

Helga Kristjánsdóttir, 15.11.2012 kl. 12:41

3 identicon

Styrmir styður líka Össur. Þú getur bætt hans kennitölu við.

http://eyjan.pressan.is/frettir/2012/11/15/ossur-eini-kostur-andstaedinga-arna-pals-grand-old-man-samfylkingarinnar/

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 15.11.2012 kl. 14:07

4 identicon

Ertu ekki svona heldur snøgg að draga ályktanir Elín? -svona eins og stundum...

Styrmir svona frekar góðlátlega að benda á fátæklegt mannval í landráðafélagsskapnum samfylkingu...

jonasgeir (IP-tala skráð) 15.11.2012 kl. 16:21

5 identicon

Ég er svona frekar góðlátlega að benda á vinsamleg ummæli Styrmis um Össur. Honum þykir hann ekki vondur kostur. Er hann sem sagt að hía á hann segirðu?

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 15.11.2012 kl. 16:59

6 Smámynd: Elle_

Ætli Styrmi þyki hann ekki í alvöru voða vondur kostur, svona almennt?  Hann vill kannski frekar að Össurarflokkurinn fari norður og niður (lengra niður en nú þegar og leggi upp laupana), vitandi það að það muni hann gera með Össuri.

Elle_, 15.11.2012 kl. 17:37

7 identicon

Styrmir styður Össur til vondra verka. Má kannski draga þá ályktun?

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 15.11.2012 kl. 18:06

8 identicon

Sú staðreynd að Össur ber af í þingliði Samfylkingarinnar segir allt um þinglið Samfylkingarinnar fremur en mannkosti Össurar.

Átakanlegt að fylgjast með þessu fólki.

Rósa (IP-tala skráð) 15.11.2012 kl. 18:11

9 Smámynd: Elle_

Stundum skil ég ekki Styrmi, þó ég sé oftast sammála honum.  Skildi hann alls, alls ekki í forsetamálinu: Gegn lýðræðisforsetanum Ólafi (eins og þið, Elín og Rósa), og með Þóru??  Það var frá mínum sjónarhóli algerlega óskiljanlegt.

Elle_, 15.11.2012 kl. 19:51

10 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Elle, hvernig væri pólitíkin og samfélagið,ef allir fylltust af sannleiksást og friðsemd. það lysti niður bombu sem ylli þessum stakkaskiptum,þori nú varla að minna á hvernig Páll postuli umbreyttist á andartaki. Af því leiddi að, Jóhanna og Davíð féllust í faðma, harðjaxlarnir Björn Valur og Ólafur forseti,svei mér þá,maður fengi óþægilegt fráhvarf, haukarnir eins og lömb,er komið að marg spáðum heimsendi. Nei,fyrr frýs í ,æðum blóð!! Mb.Kv. Ellimóð.

Helga Kristjánsdóttir, 15.11.2012 kl. 22:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband