Merkel gerir Össur að ómerkingi

Merkel kanslari Þýskalands sagði á leiðtogafundi í dag vanda evrusvæðisins aðeins leystan með breytingum á stofnsáttmálum Evrópusambandsins og samruna ríkisfjármála aðildarríkjanna. Aumingja Össur utanríkis á Íslandi sagði síðast í gær að skuldakreppan í álfunni væri efnahagslegt lítilræði hvers lausn væri þegar ,,teiknuð."

Samkvæmt Financial Times hefur Merkel ekki áður tekið jafn sterkt til orða um nauðsyn samruna ríkisfjármála. Samruninn felur í sér að fjárlagavaldið flyst frá þjóðríkjum til framkvæmdastjórnarinnar í Brussel.

Ráðuneytið á Rauðarárstíg er ekki með heimild frá alþingi að flytja valdheimildir um íslensk ríkisfjármál til Brussel. Umsóknina um aðild Íslands að Evrópusambandinu verður að afturkalla.


mbl.is Engar breytingar á hlutverki Evrópska seðlabankans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

  Heyriði það!  Aftur kalla umsóknina Jóhanna!

Helga Kristjánsdóttir, 24.11.2011 kl. 17:56

2 identicon

Össur skilur bara ekki upp né niður í teiknisettinu þeirra í Brussel.

Brussel teiknar; Eurobond.

Merkel segir NEI.

Brussel teiknar; ESFS.

Merkel segir nei og Sarkozy getur ekki.

Brussel teiknar; Miðstjórn.

Monti og allir hinir PIGS segja NEI.

Svona er nú teikningin þeirra í Brussel.  Engin vill listaverk tæknikratana, byrokratana og svo allra hinna kratana.

jonasgeir (IP-tala skráð) 24.11.2011 kl. 18:30

3 identicon

Össur teiknar bara fiska skyldi það virka í Brussel?

Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 24.11.2011 kl. 19:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband