Evrópusambandið færist nær klofningi

Björgunarpakkinn sem leiðtogar Frakklands og Þýskalands komu sér saman um handa Grikklandi gæti bjargað evru-samstarfi 17 ríkja en aðeins á kostnað samstarfsins við þau tíu ríki Evrópusambandsins sem standa utan Evrulands.

Eftir sigurvímu gærdagsins í Brussel vegna árangurs Merkel og Sarkozy var reynt í morgun að ,,kæla" sannfæringu margra að vandamál evru-svæðisins væru úr sögunni.

Aðalstjórnmálaskýrandi Telegraph, Peter Oborne, segir samkomulagið stórt skref í átt að samruna efnahagskerfa evru-svæðisins undir þýsku forræði. 

Bretland mun ekki ganga á vit Evrulands og söguleg rök fyrirbjóða pólskum stjórnmálamönnum að leggja lífsmöguleika pólska ríkisins undir þýska hagsmuni.

Ef tekst að bjarga evrunni mun það valda klofningi í Evrópusambandinu. Annars vegar þýsk-franska Evrulandið og hins vegar jaðarríki í vestri, norðri og austri s.s. Bretland, Svíþjóð og Pólland.

Jaðarríkin munu annað tveggja búa við einhvers konar samning um Evrópska efnahagssvæðið eða tvíhliða samninga við Brussel.

Umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu líkist æ meir nátttrölli á björtum degi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Upphafið að endanlokunum væntanlega !!  ......Steintröllið Össur með Island i skjóðu sinni ..... aðhláturs efni um allann heim !!.......................

Ransý (IP-tala skráð) 22.7.2011 kl. 11:44

2 identicon

Það er mjög sennilegt að Össur og félagar eru búnir að ganga svo fram af ESB þjóðunum með þessum skrípaleik að skaðinn sem þeir hafa valdið þjóðinni gegn sambandinu með bjölluatinu í Brussel verði ekki bættur.

.

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 22.7.2011 kl. 12:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband