Stjórnin fórnar vinsælustu ráðherrunum

Utanþingsráðherrarnir mælast vinsælastir með almennings og þeim á að fórna samkvæmt síðustu fréttum. Gangi það eftir undirstrikar Jóhönnustjórnin veikleika sína því það er ódýrasta leiðin sem stjórnin velur með því að skáka af borðinu Gylfa og Rögnu. Hvorugt þeirra er stjórnmálamenn og eiga því ekkert bakland.

Ófriðarbálið innan ríkisstjórnarinnar skíðlogar sem fyrr. Í Sjónvarpsfréttum í kvöld hjólaði utanríkisráðherra í starfsbróður sinn í ráðuneyti landbúnaðar fyrir að spara gjaldeyri með því að hækka tolla á evrókjúllum.

Spaugstofan fær úr nógu að moða á nýjum baugsvettvangi.


mbl.is Gylfi og Ragna hætta í stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Pétursson

Gamla gráhærða flugfreyjan að sýna það svart á hvítu afhverju hún tók aldrei meira en verslunarpróf.  Metnaðarleysið og úrræðaleysið algjört í öllum málum.

Guðmundur Pétursson, 31.8.2010 kl. 20:23

2 identicon

Þessir snillingar toppa sig nánast í hvert sinn sem þau opna á sér þverrifuna.  Gylfi mátti fara vegna óheilinda, en Ragna er þeim ljósárum fremri hvað atvinnumennsku og hæfi varðar, miðað við restina sem liðið kaus yfir sig.  Þetta pólitíska sjálfsmorð ríkisstjórnarinnar ætlar að vera afskaplega langdregið og kvalafullt fyrir þjóðina.

Guðmundur 2. Gunnarsson (IP-tala skráð) 31.8.2010 kl. 20:26

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Páll. Ragna er í erviðari stöðu en við kannski gerum okkur grein fyrir, en hún er frábær persóna, sem því miður er tengd gömlum pólitískum öflum sem er þrándur í götu þessarar frábæru konu sem Ragna er.

Vinsældir Gylfa Magnúsonar féllu niður í kjallara hjá mér þegar honum datt í hug að innleiða bónusa í bönkunum aftur!!!

Og held ég að ég hafi notað nokkurn veginn sömu orð á blogginu þá, sem ég heyrði í gær á einhverri útvarps-stöðinni í gær af gamalli upptöku Gvendar jaka eins og hann var kallaður, þegar hann var að lýsa launa-muninum og misréttinu á okkar Fróni: "Þvílíkur andskotans kjarkur"og átti það við óréttlát laun verkamanna um leið og topparnir höfðu svo margföld verka-mannalaun að erfitt er að margfalda það þótt maður sé ekki með reikniblindu! M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 31.8.2010 kl. 20:30

4 identicon

Ég hef áhyggjur af ríkisstjórninni ,,ég verð að segja það".  Sú sem nú situr (eða reynir það) er örugglega með erfiðasta verkefni Íslandssögunnar. Ekki nóg með það, heldur þarf hún að ,,smala köttum" kvölds og morgna til að koma málum áfram.  Þrátt fyrir allt eru mál samt að þokast í rétta átt í heildina tekið og Guði sé lof fyrir það.  ESB og Icesave eru hrikaleg óveðursský - eins og ekki væri nóg að gera án þeirra.

Kosningar núna er ekki það sem við þurfum, þrátt fyrir allt.

Vilhjálmur Grímsson (IP-tala skráð) 31.8.2010 kl. 21:20

5 identicon

Hvenær hefur landinu verið stjórnað af einhverju viti án aðkomu Sjálfstæðisflokksins?

Palli (IP-tala skráð) 31.8.2010 kl. 21:30

6 identicon

Nú er þessi ömurlega ríkisstjórn endanlega búin að vera.

Karl (IP-tala skráð) 31.8.2010 kl. 21:35

7 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

"Hvenær hefur landinu verið stjórnað af einhverju viti án aðkomu Sjálfstæðisflokksins?" - Þetta segir maður með ísmeygilegan og kyngimagnaðan húmor! Tær snilld. Hvenær hefur eitthvað verið gert af viti án Sjálfstæðisflokksins?

Við erum að sjá "dugnað" Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ og eigum eftir að sjá hann skýrar hér í Mosfellsbæ þegar innviðum og frágangi við Leirvogstungu og Helgafell verður velt yfir á bæjarfélagið. Liðskiptasjúkrahúsið Primacare virðist líka vera stórt flopp.

Það er miklu léttara verkefni að endurbæta stjórn VG og Samfylkingar heldur en endurvekja stjórnarfar Sjálfstæðisflokksins. Enda ekki ástæða til.

Gunnlaugur B Ólafsson, 31.8.2010 kl. 23:46

8 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Rögnu var fórnað svo Gylfi gæti haldið andlitinu og hér er samfylkingaruppvakningur mættur til að deila á aðra, þegar verkvíði ríkisstjórnarinnar er að sigla öllu í strand.

Ragnhildur Kolka, 1.9.2010 kl. 00:16

9 Smámynd: Gunnlaugur B Ólafsson

Góðan daginn

Var ekki Jón borgarstjóri að kvarta undan hroka Hönnu Birnu og Sjálfstæðisflokks. Í dag er Góðan daginn dagurinn.

"samfylkingaruppvakningur", "íhaldsafturganga" - Gæti svona orðaval auðveldað endurkomu hrokans til valda á Íslandi.

                     Njótið dagsins,

                                         ykkar einlægur,

                                                               Gunnlaugur

Gunnlaugur B Ólafsson, 1.9.2010 kl. 08:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband