Óvitarnir Steingrímur J. og Jóhanna

Það er af óvitaskap sem Jóhanna og Steingrímur J. hafa talað máli Breta og Hollendinga gagnvart Íslendingum. Skötuhjúin eru heimarík en lyppast niður utan túnfótar en hvorug verseruð í alþjóðastjórnmálum. Frammistaða Ólafs Ragnars erlendis sýnir að þar fer stjórnmálamaður sem kann sitt fag.

Til að við fáum nýjan Icesave-samning þurfa þau Jóhanna Steingrímur J. að segja af sér. Óvitaskapur er engin afsökun.


mbl.is „Það er verið að kúga okkur"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ríkisstjórnin hefur verið óhemju lin og lulluleg, en aðalatriðið er:

Nú tökum við bara húfuna ofan fyrir ÓRG.  Hann hefur gert iðrun og fylkir nú með þjóðinni.  Af hverju fylkja flokkarnir ekki með forsetanum og þjóðinni?  Hvað veldur?

Við hljótum öll að vera sammála um að við höfnum því að borga óreiðu-skuldir íslenskra einka-vina-væddra fjár-glæpamanna, sem enn fá að valsa óáreittir um allt valdakerfið og stofnanir ríkisins.

Við segjum auðvitað NEI, þingmenn allir hljóta líka að gera það...að lokum.  Eða vilja einhverjir þingmenn eingöngu ganga erinda fjár-glæpamanna, en ganga gegn forsetanum og þjóðinni?  Þeim verður aldrei stætt á því.

Við segjum öll NEI

Pétur Örn Björnsson (IP-tala skráð) 30.1.2010 kl. 17:53

2 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Algerlega get ég verið samála þér Páll.

Sigurður Haraldsson, 30.1.2010 kl. 22:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband