Fjármálaterror og þjóðaratkvæði

Þjóðaratkvæði á Íslandi um greiðslu á Icesave-skuldum er að snúast upp í lýðræðislegt andóf gegn alþjóðakapítalinu, eða bankaterrorisma eins og sumar kalla það. Fyrir utan kómíkina í því að róttækasta aflið í íslenskum stjórnmálum, Vinstri grænir, ætlar að mæla með undirlægjuhætti gagnvart erlendum fjármálastofnunum þá er augljóst að verulega mikið er í húfi í útlöndum.

Þegar við höfnum í þjóðaratkvæði að greiða skuldir sem stofnast af fjármálafurstum er í skjóli óskýrra lagaverndar bjóða sjóræningjavexti til almennings sendir það skilaboð um víða veröld að lögmál fjármagnsins má brjóta á bak aftur. Fjármálastofnanir austan hafs og vestan munu ekki líta hýru auga til stjórnvalda í London og Haag fyrir að setja fjármálaskuldbindingar í uppnám.

Ísland mun ekki um langan aldur stunda önnur bankaviðskipti en þau hversdagslegu. London og Amsterdam eru aftur á móti fjármálamiðstöðvar á alþjóðavísu. Þrýstingurinn verður á þarlend stjórnvöld að semja við Íslendinga áður en við höfnum Icesave-skuldum í þjóðaratkvæði.

 

 


mbl.is 60% andvíg Icesave-lögunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband