Þriðjudagur, 4. maí 2021
Samfylkingin og glæpir
Á alþingi, undir liðnum störf þingsins
tók Helga Vala Helgadóttir úr Samfylkingunni til máls og skoraði á ríkisstjórnina að bregðast við manneklu og fjárskorti lögregluembætta landsins vegna uppgangs skipulagðar glæpastarfsemi.
Til skamms tíma var Samfylkingin full andúðar á lögum og reglu. En nú vill fylkingin taka fast á glæpum og misindismönnum, einkum þeim sem skolar á land. Verjum landamærin og aukum löggæslu.
Samfylkingin er veðurviti íslenskra stjórnmála. Nú blása íhaldsvindar og fylkingin ekur seglum til að njóta byrjar.
Vill aldurstakmörk á snjallsíma og samfélagsmiðla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 4. maí 2021
Kolbeinn hjálpar Loga að klekkja á Katrínu
Kolbeinn Óttarsson Proppé þingmaður Vinstri-grænna færir Loga formanni Samfylkingar skotfæri þegar hann gerir því skóna að hagsmunahópar stjórni landinu en ekki lögmæt stjórnvöld.
Með aðstoð Kolbeins gerir Logi Katrínu forsætis að leikbrúðu hagsmunahópa.
Kolbeinn er fimmta herdeild Samfylkingar í liði Vinstri grænna.
Segir Katrínu gera lítið úr orðum seðlabankastjóra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)