Þriðjudagur, 8. desember 2020
Tók Spanó Villa vin með í hæstarétt?
Róbert Spanó á tvo vel auglýsta vini. Annar er lögmaðurinn Vilhjálmur H. sem Spanó gerði þann greiða að skrifa pólitískan dóm i Strassborg og olli stjórnarkreppu á Íslandi, eins og til stóð.
Hinn vinur Spanó er Erdogan Tyrklandsforseti. Spanó heimsótti Tyrkjann að tala um mannréttindi - en landi þar sem þau engin eru.
Eftir dómaglennuna í Evrópu og heimsókn til mannréttindaböðulsins er Spanó vinafár á Fróni.
Ekki einu sinni sameiginlegum þingflokksfundi Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata dytti í huga að bjóða til sín höfundi mesta bjarnargreiða ársins. Þó er margt líkt með skyldum þegar dómgreindarleysi er annars vegar.
En Spanó á Villa og Villi Spanó.
Róbert Spanó heimsótti Hæstarétt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 8. desember 2020
Þýsk tortryggni gagnvart bóluefni
Þýsk yfirvöld kaupa ekki bóluefnið gegn Kínaveirunni án frekari rannsókna. Þau óttast aukaverkanir sem kunna að valda heilsutjóni.
Varkárni Þjóðverja stingur i stúf við almæli á vesturlöndum að nú sé komið töfralyf við veirunni.
Það borgar sig að flýta sér hægt. Álög fylgja töfrum.
Segir ekki tímabært að bólusetja í Þýskalandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)