Mánudagur, 7. desember 2020
Sjálfstæðisflokkurinn eykur fylgið vegna MDE-málsins
Píratar, Viðreisn og aðrir vinstriflokkar ætluðu að skora stórt með MDE-málinu. Síðasti hluti þess hófst fullveldisdaginn.
Almenningur keypti ekki áróður vinstrimanna um ónýta Ísland og jánkaði móðurflokknum í skoðanakönnun sem stóð yfir þá daga sem málið geisaði í umræðunni.
Vinstriflokkarnir eru sérfræðingar að skjóta sjálfa sig í fótinn.
Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Mánudagur, 7. desember 2020
Kennarar kæri foreldra fyrir ofbeldi
Ekki er það góð hugmynd að kennarar fái það sérstaka hlutverk að finna nemendur er ,,verða fyrir og/eða verða vitni að heimilisofbeldi" og kæri til lögreglu.
Hlutverk kennara er að mennta, ekki að hnýsast í einkamál nemenda og fjölskyldna þeirra.
Áhugafólk um ofbeldi fer himinskautum í umræðunni og vill að ríkisvaldið hefji umsátur um heimili landsmanna í leit að misfellum í fjölskyldulífi. Nú heitir það ofbeldi ef foreldrar eiga það til að öskra. Víst er það ekki til fyrirmyndar en sumum liggur hátt rómur.
Á meðan það er frjálst val einstaklinga að geta börn og stofna heimili er viðbúið að sumir sem ættu ekki að eignast börn geri það engu að síður.
Gagnvart þeirri óheppilegu staðreynd mannlífsins að sumir eru ofbeldishneigðir ber ekki að tefla fram ríkisvaldi er hefji víðtækt eftirlit með fjölskyldum landsins.
Aðeins 13% tilkynninga frá skólum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 09:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)