Laugardagur, 26. ágúst 2017
Þingmenn misskilja hlutverk sitt
Eftirfarandi er haft eftir þingmönnum Bjartar framtíðar:
Þingið líkist fremur málstofu og snúist ekki um framkvæmd verkefna.
Nú er það svo að alþingi á að setja lög og eftir atvikum taka málefni þjóðfélagsins á dagskrá, t.d. í formi fyrirspurna og þingsályktana. Í þessum skilningi er þingið málstofa.
Framkvæmdavaldið, ríkisstjórn, ráðuneyti og ríkisstofnanir, eiga að hrinda þingvilja i framkvæmd.
Upplifi Alþingi á svipaðan hátt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 26. ágúst 2017
Á að banna kóraninn?
Kóraninn er hættulegur. Þetta helgirit múslíma er notað til að réttlæta morð á saklausu fólki víða um heim. Jú, það er rétt að allur þorri múslíma er friðsamur og stundar ekki ofbeldi.
Engu að síður er lítill minnihluti múslíma afkastamikill í hryðjuverkum. Og sækir hvatningu í kóraninn í þeirri iðju að drepa fólk af handahófi.
Eigum við þá að banna helgirit múslíma? Nei, kóraninn er hluti frjálsrar orðræðu og menningarverðmæti líkt og biblían.
Með sömu rökum eigum við ekki að banna ádeilurit eins og Charlie Hebdo eða önnur sem fara fram með misjafnlega smekklegum hætti gegn trúarsannfæringu fólks.
Trú, hvort heldur kristni eða íslam, verður að þola áreiti. Trúin stendur ekki ofar frjálsri orðræðu.
Charlie Hebdo ögrar enn á ný | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 26. ágúst 2017
BBC útskýrir vinsældir Trump: menningarreiði
Milli 35 til 40 prósent Bandaríkjamanna styðja Trump forseta algjörlega óháð því hvort hann nái fram nokkrum stefnumálum sínum eða ekki. Trump sameinar þá sem eru menningarlega á móti pólitísku elítunni í Washington, fjölskylduveldum Bush-ara og Clinton-hjónanna og ekki síst fjölmiðlum, sem eru frjálslyndir og alþjóðavæddir.
Þetta er kjarninn í greiningu Katty Kay á BBC. Stuðningsmenn Trump horfa með hryllingi á vandalisma frjálslyndra og vinstrimanna, sem rífa niður opinber minnismerki, er staðið hafa í kynslóðir, með rökum pólitískrar tækifærismennsku.
Trump þekkir sitt heimafólk og talar til íhaldsmanna sem eru langþreyttir á pólitískum rétttrúnaði og þeim yfirgangi sem fylgir, t.d. að söguleg minnismerki eru fjarlægð. Þegar baráttan stendur um sjálfsmynd bandarísku þjóðarinnar verða efnahagsmál hjóm eitt.
35 til 40 prósent fylgi er ekki nóg til að sigra forsetakosningar. En reynslan sýnir að pólitíski rétttrúnaðurinn er sundurlaus þegar á hólminn er komið. Hillary Clinton tapaði forsetakosningunum vegna þess að aðrir vinstriframbjóðendur tóku til sín atkvæði.
Hugleiðir að fjarlægja styttuna af Kólumbusi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)