MS sem elítuskóli og kerfiđ

Tveir framhaldsskólar, MR og Versló, eru hversdags kallađir elítuskólar og jafnvel ađ MH sé í ţeim flokki. Í ţessa skóla sćkja bestu námsmennirnir.

Međal skólamanna er talađ um ađ MS, Menntaskólinn viđ Sund, hafi sett sér markmiđ um ađ komast í ţennan flokk međ ţví ađ taka ađeins inn úrvalsnemendur. Orđ Más rektors um minna brottfall rennir stođum undir umtaliđ. Úrvalsnemendur falla síst frá námi.

En kerfiđ miđast ekki viđ elítuskólana heldur er eitt fyrirkomulag fyrir alla framhaldsskóla. Skóli sem ákveđur ađ fylla ekki árskvótann, t.d. vegna ţess ađ hann vísar frá nemendum međ međaleinkunn eđa lćgri, lendir síđar meir í vandrćđum vegna ţess ađ skólar frá greitt fyrir nemendur sem stunda ţar nám, án tillits til ţess hvort ţeir séu góđir námsmenn, međalnámsmenn eđa slakir.

Már rektor talar um ,,fáránlegt kerfi". En kerfi sem virkar fyrir nćr alla ađra skóla en MS getur varla veriđ út í hött. Hér er mađkur í MySunni.


mbl.is „Ţetta er fáránlegt kerfi“
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Múslímastjórnmál og vestrćnt lýđrćđi

Erdogan Tyrklandsforseti rekur milda útgáfu af múslímskum hreintrúarstjórnmálum; hann rekur mann og annan úr opinberum embćttum. Hreinsanir af ţessu tagi voru algengar í Austur-Evrópu ţegar heimshlutinn var undir alrćđi kommúnista.

Á Gasa-ströndinni stunda Hamas-samtökin harđari útgáfu af múslímapólitík og taka menn af lífi án dóms og laga.

Í trúarmenningu múslíma er ríkur stuđningur viđ ađ gera trúarlöggjöf múslíma, sharía, ađ landslögum. Vestrćnt lýđrćđi og múslímastjórnmál eru ósamrýmanleg.


mbl.is Hamas tók ţrjá af lífi
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Ríki íslams og Nató sem alheimslögga

Ríki íslams er heiti á hryđjuverkasamtökum annars vegar og hins vegar nafn á tilraun til ađ setja saman trúarríki múslíma á svćđi ţar sem nú eru Írak og Sýrland.

Sumir, t.d. dálkahöfundurinn Thomas L Friedman, vilja ađgreina baráttuna gegn hryđjuverkasamtökum múslíma á vesturlöndum frá stríđinu í miđausturlöndum.

Nató er ekki međ neitt hlutverk sem hernađarsamtök innan landamćra ađildarríkjanna. Nató er til ađ verja ytri landamćri ađildarríkja sinna.

Ef Nató fćr aukiđ hlutverk ađ berjast gegn Ríki íslams verđur vettvangurinn miđausturlönd. Nató var hvorki stofnuđ sem alheimslögregla né eru samtökin til ţess hćf.

Vestrćn ríki ćttu ađ hafa sem langtímastefnu ađ draga sig úr trúarstríđi miđausturlanda en ekki ađ auka á hörmungarnar ţar.


mbl.is NATO í bandalagi gegn Ríki íslams
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Verjum tungumáliđ - lokum Reykjavíkurflugvelli

Tungumáliđ stendur ofar viđskiptahagsmunum og öllum samgöngumannvirkjum. Flugfélag Íslands er háđ tilvist Reykjavíkurflugvallar.

Ţegar flugfélagiđ leggur til atlögu ađ tungumálinu međ nafnbreytingu úr íslensku yfir í orđskrípi er sjálfsagt ađ grípa til varna.

Lokun Reykjavíkurflugvallar vegna orđskrípis yrđi vitanlega róttćk ađgerđ. En stundum ţarf róttćkar ađgerđir til ađ menn skilji alvöru málsins.


mbl.is Mímir mótmćlir nafninu
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 26. maí 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband