Óvćnt ţróun í Frakklandi - kommúnisti sćkir fram

Marine Le Pen er međ 24 prósent fylgi í Frakklandi, miđjumađurinn Emmanuel Macron mćlist međ sama fylgi. Ţessi tvö eru líklegust til ađ komast í ađra umferđ forsetakosninganna. En ţriđji frambjóđandinn, Jean-Luc Mélenchon, gćti sett strik í reikninginn.

Mélenchon nýtur stuđnings franska kommúnistaflokksins. Hann vitnar í Maó formann og Hugo Chavez, sem gerđi sósíalistatilraun í Venesúela. Mélenchon er í stórsókn, mćlist međ 18 prósent fylgi.

Telegraph segir fjöldafundi Mélenchon draga ađ sér tugţúsundir sem vilja róttćkt brotthvarf frá frjálshyggjupólitík. Almennt er taliđ ađ Mélenchon taki fremur fylgi frá Macron en Le Pen.

Le Pen og Mélenchon eru bćđi gagnrýnin á Evrópusambandiđ og höll undir Pútín Rússlandsforseta. Le Pen er međ smekk fyrir Donald Trump en Mélenchon ekki.

Fari svo ađ ţau tvö bítist um forsetaembćtti Frakklands, međ ţví ađ verđa efst í fyrri umferđ forsetakosninganna 23. apríl, er komin upp sérstök stađa í vöggu borgaralegs lýđrćđis í Evrópu.


mbl.is Vilja aflétta friđhelgi Le Pen
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Fyrsta fórnarlambiđ í stríđi er sannleikurinn

Eiturvopnaárásin i Sýrlandi er óupplýst. Bandaríkin og ESB segja Assad forseta ábyrgan, sem segir sig saklausan af ódćđinu. Á BBC segir Peter Ford, fyrrum sendiherra Bretlands í Sýrlandi, kaupir ekki ásakanir Bandaríkjanna og ESB.

Í stríđi er sannleikurinn fyrsta fórnarlambiđ. Annađ dćmi: stóra sprengjan sem Bandaríkjamenn notuđu í Afganistan í gćr er sögđ hafa drepiđ 36 skćruliđa. Viđ eigum sem sagt ađ trúa ađ afgönsk yfirvöld hafi í beinu framhaldi sent fulltrúa sína ađ telja lík í sundursprengdum neđanjarđargöngum. Ţađ er einfaldlega óhugsandi. ,,Fréttin" er uppspuni.

Stríđsfréttir eru sneisafullar af rangfćrslum. Stríđsađilar hafa ríka ástćđu ađ búa til fréttir sem ţjóna ţeirra málstađ. Trump sendi nokkrar sprengjur á flugvöll Assad-stjórnarinnar í beinu framhaldi af fréttum af eiturvopnaárásinni. 


mbl.is 100% lygar, 100% grimmd
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 14. apríl 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband