Rússland er ekki vandamálið

Rússland bjó ekki til ófriðarbálið í miðausturlöndum. Innrás Bandaríkjanna í Írak 2003 og innanlandsátök í Sýrlandi og Líbýu gáfu herskáum íslamistum færi á að styrkja sig. Rússar komu inn í atburðarásina eftir að hún hófst.

Vestræn ríki, Bandaríkin fyrst og fremst, bera meginábyrgð á stöðu mála - að því leyti sem vandinn er ekki heimatilbúinn.

Rússland ætti að vera hluti af lausn vandans. Til að það gangi eftir er smámál í Úkraínu sem þarf að leysa.

 


mbl.is Beita Rússa ekki efnahagsþvingunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sósíalismi sem farsi

Maðurinn sem vildi gera Ísland að fylki í Noregi boðar stofnun Sósíalistaflokks nokkrum dögum eftir að hann hætti sem kapítalískur blaðaútgefandi og lagði á flótta frá eigin launþegum.

Sósíalisminn sem Gunnar Smári boðar er ,,allt fyrir ekkert". Kjósiði mig og þið fáið allt frítt og hamingjuna í kaupbæti.

Gunnar Smári er lunkinn að finna sér viðhlæjendur. En það hljóta að vera takmörk hve mörgum fíflum er hægt að etja á foraðið.


mbl.is Sósíalistaflokkur verði stofnaður 1. maí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 11. apríl 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband