Múslímar, glæpir og trúarmenning

Morðinginn í London, Khalid Masood, byrjaði ferilinn sem smáglæpamaður áður en hann tók til við að drepa í nafni íslam. Líkt og margir aðrir af sama sauðahúsi.

Í trúarmenningu múslíma er aðskilnaðarstefna milli trúaðra og vantrúaðra. Múslímsk trúarmenning elur á fordómum í garð þeirra sem ekki tilheyra íslam.

Kalid Masood var borinn og barnfæddur múslímskur Englendingur. Síðasta verk hans hér á jörðu var að staðfesta mótsögnina milli íslam og vestrænna mannréttinda.


mbl.is Nafn árásarmannsins birt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Múslímsk fjölmenning virkar ekki

Hryðjuverkamaðurinn í London var herskár múslími, segir Telegraph. Uppskriftin að ódæðinu kemur beint upp úr handbók múslíma sem vilja ríki allah í stað vestrænna lífshátta.

Í skjóli fjölmenningar á vesturlöndum eru múslímar aldir upp í fyrirlitningu á vestrænum gildum. Dálkahöfundurinn Katie Hopkins spyr hversu lengi þetta á að viðgangast.

Múslímavædd fjölmenning er skálkaskjól hryðjuverka.


mbl.is Átta handteknir í tengslum við árásina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frjálslynt hrun

Viðreins og Björt framtíð kenna sig við frjálslyndi. Báðir flokkarnir eru ESB-sinnaðir og alþjóðavæddir. Hvorugur mælist með fylgi til að fá fulltrúa á alþingi.

Ríkisstjórnarseta færir flokkunum tveim engin sóknarfæri vegna þess að þeir hafa engan grunn til að byggja á. Viðreisn og Björt framtíð skolaði á þing í ölduróti eftirhrunsins. Hvor flokkur um sig er útgáfa af Samfylkingunni, annar til hægri en hinn á miðjunni.

Þegar stjórnmálin aðlagast veruleikanum á ný falla pólitísku viðrinin milli skips og bryggju.


mbl.is Fylgi Bjartrar framtíðar og Viðreisnar hrynur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 23. mars 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband