ESB á gjörgæslu - Brusselmenn gefast upp

Martin Schulz kanslaraefni jafnaðarmanna í Þýskalandi, og fyrrum forseti Evrópuþingsins, segir raunverulega hættu á að Evrópusambandið liðist í sundur. Jean Claude-Juncker forseti framkvæmdastjórnar ESB segir ,,heimsaugnablik" sambandsins renna upp í ár.

,,Heimsaugnablik" er fengið frá rithöfundinum Stefan Zweig sem lýsti hruni Evrópu fyrir hundrað árum í bókinni Veröld sem var. Zweig stytti sér aldur eftir síðasta punktinn í handritinu.

Innanbúðarmenn í Brussel setja ESB á gjörgæslu sögunnar. Þegar svartnætti er í höfuðstöðvunum er fátt til bjargar. Almenningur vill minna ESB en eina leiðin úr gjörgæslunni er Stór-Evrópa - miðstýrt sambandsríki. ,,Heimsaugnablikið" er liðið og aðeins nábjargirnar eftir.

 


mbl.is Óttast að Bretar kljúfi Evrópusambandið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gunnar Smári safnar fyrir gjaldþroti - og sósíalisma

Gunnar Smári Egilsson útgefandi Fréttatímans safnar peningum hjá almenningi á sama tíma og útgáfufélag hans rambar á barmi gjaldþrots. Björn Bjarnason rekur samhengi samskotasöfnunar Gunnars Smára og gjaldþrotaferlið.

Fréttatíminn er fríblað. Aðferð Gunnars Smára er safna áskrifendum að fríblaði, sem býsna frumleg nálgun; að borga fyrir að sem er ókeypis.

Gunnar Smári er í skjallbandalagi við RÚV, sbr. ,,Fyrir utan Ríkisútvarpið eru aðeins örfáir og veikir miðlar sem eru fyrst og fremst í almannaþjónustu." Hann fékk inni á RÚV til að boða fagnaðarerindi sósíalismans.

Gjaldþrota útgáfufélag safnar sem sagt áskrifendum að fríblaði til að boða sósíalisma undir merkjum frjálsrar fjölmiðlunar. Gunnar Smári stefnir á heimsmet í mótsögnum.


Falsfréttir, stærðfræði og góða fólkið

Laun eru fastar stærðir í krónum. Samkvæmt því ætti að vera hægt að mæla þau með stærðfræðilegri nákvæmni og fullyrða að tiltekinn hópur, bundinn við aldur, kyn eða búsetu, sé með hærri eða lægri laun en samanburðarhópur.

En þannig er það ekki. Af einhverjum ástæðum er ráðandi viðhorf að konur séu með lægri laun en karlar. Rökin fyrir þessu viðhorfi eru ,,marklausar" launakannanir stéttarfélaga, segir Einar Steingrímsson stærðfræðiprófessor.

Allar fréttir byggðar á marklausum könnunum um launamun kynjanna eru samkvæmt skilgreiningu falsfréttir. En það eru einmitt falsfréttirnar sem ráða mestu um það ríkjandi viðhorf að konur fái lægri laun en karlar.

Síðast fyrir tveim dögum reiddi þingmaður hátt til höggs: ,,Það er vitað að kynbundinn launamunur er raunverulegur". Launamun verði að ,,útrýma" enda ,,ótækt óréttlæti."

Góða fólkið sérhæfir sig í að hneykslast með falsfréttir að vopni. Í umræðunni þykist góða fólkið einatt hafa réttlætið sín megin. Meint óréttlæti er iðulega rökstutt með uppspuna.

Og hverjar verða afleiðingarnar þegar góða fólkið fær sínu framgengt? Tja, ef við ,,útrýmum óréttlæti" þar sem ekkert óréttlæti finnst þá fáum við svo sannarlega ekkert réttlæti.


mbl.is Hallar ekki bara á konur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 12. febrúar 2017

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband