Fimmtudagur, 8. september 2016
Viðreisn óttast Óla Björn
Viðreisn óttast að Óli Björn Kárason verði þingmannsefni Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. Viðreisn rekur málgagnið Hringbraut sem gerir atlögu að Óla Birni með samsærisvaðli í anda Þjóðviljans sáluga.
Viðreisn óskar sér liðléttinga í átökum við Þorgerði Katrínu, sem mun leiða lista flokksins í Suðvesturkjördæmi.
Óli Björn uppfyllir ekki skilyrði Viðreisnar að vera pólitísk pissudúkka og þess vegna heggur Hringbraut í hann.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 8. september 2016
Nefnd um endalok RÚV
Markaðurinn virðist einfær um að skilja hafrana frá sauðunum, samanber að fjölmiðlaveldi Jóns Ásgeirs, 365-miðlar, eru að liðast í sundur.
RÚV á hinn bóginn starfar undir verndarvæng ríkisins og er ónæmt fyrir samfélagsbreytingum. RÚV er í grunnin sama stofnun í dag og fyrir 70 árum.
Við þurfum nefnd sem útfærir endalok RÚV. Þegar 365-miðlar og RÚV hverfa af vettvangi geta aðrir fjölmiðlar sótt fram og skapað sér stöðu í takt við samfélagið sem við búum við í dag. RÚV og 365-miðlar eru risaeðlur liðins tíma.
Starfshópur skoði stöðu fjölmiðla | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 8. september 2016
Brexit, Evrópuher og vestræn samvinna Íslands
Brexit felur í sér að Bretland mun leggja aukið kapp á samvinnu við fyrrum nýlendur sínar í vestri, Kanada og Bandaríkin, og þar er Ísland í þjóðbraut.
Evrópusambandið íhugar stofnun Evrópuhers í kjölfar úrsagnar Bretlands úr sambandinu.
Vestræn samvinna Íslands er sögulega tvíhliða varnarsamningur við Bandaríkin annars vegar og hins vegar aðild að Nató. Bandaríkin eru áhugasöm að auka viðveru sína hér á landi, eins og fram hefur komið í fréttum.
Niðurstaða: ESB-sinnar hér á landi ganga þvert gegn vestrænni samvinnu með því að berjast fyrir aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Brexit viðræður hefjist eins fljótt og hægt er | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 8. september 2016
ESB-flokkar með fylgi í kjallaranum
Viðreisn og Samfylking hírast í kjallara stjórnmálanna, með 6,7 og 7,5 prósent fylgi. Báðir flokkarnir vilja Ísland í Evrópusambandið en þangað vill þjóðin ekki.
Sjálfstæðisflokkurinn má vel við una, með rúm 28 prósent fylgi í könnun Fréttablaðsins, og í ágætum færum að fara yfir þrjátíu prósent. Framsóknarflokkurinn er að hjarna við, kominn í tveggja stafa tölu eftir að Sigmundur Davíð kom á ný á vettvang stjórnmálanna. Vinstri grænir nálgast kjörfylgi sitt, um tíu prósent, og Björt framtíð er að hverfa.
Píratar halda áfram stanslausri sigurgöngu í könnunum og eru með 30 prósent fylgi. Þeir sem segjast ætla að kjósa Pírata sýna venjulegum stjórnmálum fingurinn. Reynslan sýnir að þeir kjósendur nenna síst á kjörstað þegar kemur að kosningum.
Píratar með mest fylgi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)