Sigurður Ingi: 80 Píratar drepa stjórnarskrárbreytingar

Sigurður Ingi Jóhannesson forsætisráðherra sagði í hádegisfréttum RÚV að í innanflokkskosningum Pírata hefðu 80 sagt nei við breytingum á stjórnarskrá en 60 já.

Eftir innanflokkskosningu Pírata ákváðu Samfylking og Vinstri grænir að fylgja stefnumótun þessara 80 og hafna stjórnarskrárbreytingum.

Það verður munur, eftir kosningar, þegar 80 Píratar stjórna landinu.


mbl.is Leggur til stjórnarskrárbreytingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gleymum ekki kynlausa fólkinu

Kynlaust fólk, þeir sem nenna ekki kynlífi og eru frábitnir rómantík, sendur illa í kynjaðri réttindabarátu sem nær öll gengur út á kynhneigð.

Kynlausir eru fæddir í líkama með æxlulunarlíffæri en nota þau eingöngu til að losna við úrgang. Kynlausir, asexual á útlensku, eiga með sér samtök líkt og kynjaðir.

Kynleysi er lífsstíll sem mun njóta vaxandi vinsælda eftir því sem lífslíkur aukast.


mbl.is Berjast fyrir sýnileika intersex-fólks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brexit sameinar, spilaborgin ESB og Viðreisn

Breskir íhaldsmenn, sem deildu um hvort Bretland ætti að halda áfram í ESB eða hætta, eru sameinaðir eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna þar sem aðild að Evrópusambandinu var hafnað, segir í fréttaskýringu Politico.

Sérfræðingar í málefnum Evrópusambandsins, t.d. í Eurointelligence, telja auknar líkur á hraðferð Breta úr Evrópusambandinu. Æ minni líkur eru á að Bretar kjósi aukaaðild að ESB í gegnum EES-samninginn, sem Ísland og Noregur eiga aðild að.

Ástæðurnar eru einkum tvær fyrir því að Bretland virðist ætla að sleppa fljótt og vel úr Evrópusambandinu en ekki með eymd og langtímavolæði. Í fyrsta lagi skall engin kreppa á Bretum eftir að þeir ákváðu í sumar, með þjóðaratkvæðagreiðslunni, að ganga úr ESB. Margradda kór ESB-sinna á meginlandinu og í Bretlandi boðaði efnahagslega kollsteypu ef Bretland hrykki af ESB-hjörunum. Ekkert slíkt gerðist og Bretar eru í betri málum en stórþjóðirnar á meginlandinu í efnahagslegu tilliti.

Hin ástæðan fyrir Brexit án vandkvæða er að stærsta draumsýn Evrópusambandsins, evran, er óðum að breytast í martröð. Nóbelshagfræðingurinn Joseph Stiglitz kippur fótunum undan evrunni og það afhjúpar Evrópu sem efnahagslegt hamfarasvæði, skrifar Jeremy Warner í Telegraph.

Það er svo sérstök pæling að um leið og Evrópusambandið er rúið trúverðugleika og án framtíðarsýnar að nýr flokkur ESB-sinna á Íslandi, Viðreisn, ætlar að gera sig gildandi. En það segir líklega meira um kreppu íslenskra stjórnmála en ástandið í Evrópu.

 

 


mbl.is Vilja fríverslun frekar en EES
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 25. ágúst 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband