Fimmtudagur, 21. júlí 2016
Réttarríkið og glæpir í beinni útsendingu
Fjölmiðlar, RÚV sérstaklega, misstu sig í umræðunni um verklag lögreglunnar í Vestmannaeyjum í tengslum við nauðgunarmál. Páley Borgþórsdóttir lögreglustjóri þekkir nauðgunarmál bæði sem handhafi lögregluvalds en ekki síður vegna fyrri starfa þar sem hún var lögmaður brotaþola í nauðgunarmálum.
Verklagsreglur lögreglunnar í Vestmannaeyjum þjóna tvennum mikilvægum hagsmunum réttarríkisins; brotaþola og málsrannsóknar. Í þessu samhengi er léttvæg krafa fjölmiðla að fjalla um glæpi í beinni útsendingu.
Fjölmiðlar eru komnir langt út fyrir sín mörk þegar þeir þykjast handhafar rannsókna-, ákæru- og dómsvalds réttarríkisins.
Allar upplýsingar veittar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 21. júlí 2016
Kreppa vestræns valdakerfis: Nató, IMF og ESB
Brexit mun festa Bretland i kreppu, sagði IMF - alþjóða gjaldeyrissjóðurinn. Tilfellið er að breskur efnahagur mun vaxa meira en sá þýski og franski. Þetta eru trúðar, segir breskur þingmaður.
Nató var beitt í hernaðarbrölt í Úkraínu sem leiddi til ónauðsynlegra árekstra við Rússland og aukinnar spennu í Austur-Evrópu. Nató-ríkið Tyrkland, á landamærum Evrópu og miðausturlanda, er undir harðstjórn Erdogan, sem lætur Pútín Rússlandsforseta líta út eins og boðbera lýðræðis og mannréttinda.
Evrópusambandið, ESB, stendur frammi fyrir innri upplausn, sbr. Brexit, hryðjuverkaógn og evru-kreppu, og langtíma flóttamannavanda frá miðausturlöndum.
Orð Donald Trump, forsetaefnis Repúblíkana í Bandaríkjunum, um nauðsyn breyttrar utanríkisstefnu er ótvírætt merki um vaxandi einangrunarhyggju stærsta Nató-ríkisins.
Nató, ESB og IMF eru vestræn valdakerfi sem byggð voru upp eftir seinni heimsstyrjöld. Veik staða þessara valdakerfa veit á langvarandi óvissu um skipan mála í okkar heimshluta.
Forsenda fyrir nýju jafnvægi er að Bandaríkin/ESB/Nató annars vegar og hins vegar Rússland finni varanlega lausn á sambúðarvanda sínum í Austur-Evrópu. Án samstöðu í Evrópu verður ekki hægt að koma á skikki á málefni miðausturlanda.
Vill gjörbreyta utanríkisstefnunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)