Píratar stela Samfylkingunni - ekkert me, segir Karl Th.

Stefnuskrá Pírata er afrit fengið hjá Samfylkingunni, segir varaborgarfulltrúi Samfylkingar. Fylgi Samfylkingar, sem var tæp 30 prósent 2009 en 12,9 prósent í síðustu kosningum, er mest komið til Pírata.

Karl Th. Birgirsson fyrrverandi framkvæmdastjóri Samfylkingar segir i brýningu til flokksmanna að nú gildi ekkert me. Flokkurinn sé kominn niður í sex prósent og verði að urra og glefsa síðustu vikur kosningabaráttunnar.

Samfylkingarhvutti geltir að Pírötum næstu daga.


ESB-stjórn Viðreisnar og vinstriflokka

Frambjóðendur Viðreisnar, Þorgerður Katrín og Pawel Bartozek, tala fyrir nýrri ríkisstjórn sem setti ESB-aðild í forgang.

Vinstri grænir og Samfylking reyndu að gera Ísland að aðildarríki Evrópusambandsins kjörtímabilið 2009-2013 en mistókst. Með meirihluta Viðreisnar, Vinstri grænna, Pírata og Samfylkingar/Bjartrar framtíðar væri mögulegt að endurtaka leikinn.

Vinstri grænir eru í orði kveðnu áhugalausir um ESB-aðild. En það voru þeir líka 2009. Frambjóðandi Vinstri grænna í Suðurkjördæmi, Ari Trausti Guðmundsson, sagðist sem forsetaframbjóðandi sl. vor á beinni línu DV vera ,,forvitinn um [ESB]samning til að skoða".
 
Ari Trausti tónar sjónarmiðið um að ,,kíkja í pakkann" sem þýðir innganga í Evrópusambandið enda aðeins ein leið þangað inn og hún felst í aðlögunarferli.
 
Vinstri grænir tækju þátt í ESB-leiðangri 2017 alveg eins og þeir gerðu 2009-2013.

Bloggfærslur 8. október 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband