Laugardagur, 1. október 2016
Framsókn áhrifamesti stjórnmálaflokkur landsins
Framsóknarflokkurinn er áhrifamesti stjórnmálaflokkur landsins nú um stundir. Framsóknarflokkurinn bjó til og bar fram til sigurs þrjú mikilvægustu málin eftir hrun, Icesave-deiluna, skuldaleiðréttingu heimilanna og gríðarsterkt uppgjör við þrotabú föllnu bankanna.
Undir formennsku Sigmundar Davíð er Framsóknarflokkurinn miðdepill stjórnmálaumræðunnar, eins og sjá má af fjölmiðlaumræðunni.
Áður en Sigmundur Davíð tók við flokknum var Framsókn jaðarflokkur sem engu skipti í stjórnmálaumræðunni og áhrifalaus eftir því. Framsóknarmenn fá tækifæri á morgun til að treysta stöðu flokksins í íslenskum stjórnmálum með því að endurnýja umboð Sigmundar Davíðs til að leiða flokkinn áfram.
Framsókn falli undir menningarminjar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Laugardagur, 1. október 2016
Katrín græðir á ríkissjóði en gagnrýnir samt
Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna sótti um leiðréttingu á sínum persónulegu húsnæðislánum í krafti aðgerða ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks um stuðning við heimilin í landinu. Samt gagnrýnir hún aðgerðina. Í viðtengdri frétt segir
Gagnrýndi Katrín skuldaleiðréttinguna og sagði ríkisstjórnina hafa sólundað opinberu fé þar í mál sem breytti litlu fyrir raunverulegan efnahag heimilanna.
Í Eyjunni frá 12. nóvember 2014 viðurkennir Katrín að hafa sótt um skuldleiðréttingu fyrir sín persónulegu fjármál. Katrín neitar að gefa upp hve mikið hún fékk út úr leiðréttingunni. Hún ætti að gefa upp hagnaðinn sem hún hafði af leiðréttingunni og útskýra fyrir kjósendum hvers vegna hún tók þátt í því að ,,sólunda opinberu fé".
En kannski heitir það ekki að ,,sólunda opinberu fé" þegar Katrín sjálf fær peningana í vasann?
Óvinsæl ríkisstjórn í miðju góðæri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)