Formannsbaninn Heiða Kristin: Björt framtíð er 101 flokkur

Heiða Kristín Helgadóttir skaut þá félaga í kaf Guðmund formann og Róbert þingflokksformann með yfirlýsingum um að þeir væru dragbítur á fylgi Bjartar framtíðar.

Heiða Kristín skilgreinir flokkinn svona

Heiðu finnst oft lítið talað um höfuðborg­ina og höfuðborg­ar­svæðið á þingi og mik­il­vægi þess.

Guðmundur og Róbert voru sem sagt ekki nógu miklir miðborgarmenn fyrir smekk Heiðu Kristínar. Nokkuð sérstök greining þetta hjá formannsbananum.


mbl.is Snerist aldrei um að verða formaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flóttamenn; auðlegð eða vandamál?

Flóttamenn, hvort heldur pólitískir eða efnahagslegir, eru ýmist auðlegð eða vandamál. Ef vel er haldið á spöðunum auðga þeir menningu okkar og gerast nýtir þjóðfélagsþegnar.

Ef illa er staðið að málum verða flóttamenn félagslegt vandamál og uppspretta þjóðafélagsátaka sem gerir samfélagið okkar verra.

Við höfum erlend fordæmi, bæði á Norðurlöndum og í Vestur-Evrópu, til að varast. Viðtaka of margra flóttamanna á of skömmum tíma er ávísun á vandræði. Vandaður undirbúningur og skýr markmið um aðlögun flóttamanna að íslensku samfélagi er forsenda fyrir því að vel takist til.


mbl.is Straumur hælisleitenda til landsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 26. ágúst 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband