Höftin, kjarasamningar og ríkisstjórnin

Afnám hafta skapa efnahagsleg skilyrði sem ekki er hægt að sjá fyrir. Höftin verða leyst næstu mánuði, gangi fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar eftir.

Í því ljósi væri e.t.v. ráðlegt að kjarasamningar yrðu gerðir til eins árs, með kannski 5 til 7 sjö prósent hækkun. Að ári liðnu væri hægt að meta stöðuna upp á nýtt. Ókosturinn við skammtímasamninga er kjarasamningar gætu e.t.v. verið lausir fram á haust á kosningavetri og það er ávísun á hörmungar fyrir land og þjóð.

Hinn kosturinn er að gera samninga sem ná fram yfir næstu kosningar, vorið 2017. Miðað við núveranadi forsendur yrði launahækkun í kringum tíu prósent.

Ríkisstjórnin tekur réttan pól í hæðina þegar hún heldur að sér höndum og bíður þess sem verða vill í kjarasamningum á almenna markaðnum.

Ekki undir nokkrum kringumstæðum er hægt að láta opinbera starfsmenn stjórna ferðinni í launaþróun. Almenni markaðurinn býr við meira aðhald í kjaramálum. Ef fyrirtæki semja um meiri kauphækkanir en þau standa undir fara þau einfaldlega á hausinn.

Kvótakerfið, jafn illa þokkað og það annars er, gerbreytti kjarasamningum með því að eftir að það festist í sessi er tómt mál að tala um að ríkisvaldið krukki í gengi krónunnar til að bjarga útgerð og vinnslu sem urðu við verkföll að semja um ósjálfbær laun. Gjaldþrot blasir við fyrirtækjum sem reisa sér hurðarás um öxl, - ekkert elsku mamma lengur.  

Sterk samstaða ríkisstjórnarflokkanna um að gefa hvergi eftir óbilgjörnum kröfum mun stytta verkfallsaðgerðir. Verkalýðshreyfingin er með veikt pólitískt bakland og gildir það bæði um ASÍ-félögin og samtök opinberra starfsmanna.

Þegar verkalýðshreyfingin skynjar staðfestu ríkisstjórnarinnar verður leitað eftir samningum, annað tveggja til skamms tíma eða fram yfir næstu kosningar. 


mbl.is Stöðugleikaskattur á lokametrunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB-andstæðingar fá tvo fyrir einn

Umsókn er aðferð til að eyðileggja stjórnflokk, að því gefnu að umsóknin sé nógu illa ígrunduð og borin fram af græðgisblindri vanþekkingu. ESB-umsóknin og Samfylking passa eins og flís við rass í þessari skilgreiningu.

Samfylking getur hvorki barist fyrir ESB-umsókninni því að málefnastaðan er gjörtöpuð, hvort heldur litið er til eymdarstöðu Evrópusambandsins eða velsældarinnar á Íslandi, né getur Samfylking svarið af sér umsóknina og varpað Evrópumálum fyrir róða enda á flokkurinn ekkert annað málefni að berjast fyrir.

Samfylking er með ESB-umsóknina sem myllustein um háls sér. Systurflokkurinn, Björt framtíð, er um það bil búin að koma sjálfum sér fyrir kattarnef vegna umsóknarinnar, þótt ekki beri systurflokkurinn sömu ábyrgð og móðurflokkurinn á mistökunum fyrir sex árum. 

Guðmundur Steingrímsson formaður Bjartrar framtíðar er ESB-sinni fram í fingurgóma. Hann líður önn yfir stöðu umsóknarinnar og reyndi í gærmorgun að véla fulltrúa Seðlabankans með sér í evruför með fjármagnshöftin. Heimssýn greinir frá sálarstríði formannsins á morgunfundinum með seðalbankamönnum.

Eftir hádegi var Guðmundi öllum lokið og hann lýsti sig fífl sem ekki hægt væri að boða á fundi. Stjórnmálamaður sem uppnefnir sjálfan sig og auglýsir sig hornkerlingu sem ástæðulaust er að boða á fundi er vitanlega á leið úr starfi; án funda þrífast ekki stjórnmál.

Kratísku systurflokkarnir stunda umsóknarsjálfspíningu sem verður æ ámátlegri eftir því sem frá líður pólitíska stórslysinu 16. júlí 2009.


mbl.is Þjóðin klofin í afstöðu til ESB-umsóknar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfsmorð, glæpur og trú

Sjálfsmorð eru litin hornauga í kristnum menningarheimi. Þeir sem tóku eigið líf fengu til skamms tíma ekki kristna greftrun enda glæpur að tortíma dýrmætustu guðsgjöfinni, lífinu sjálfu. Í veraldlegum heimi vesturlanda er sjálfsmorð tíðast greint sem sjúkdómur og sem slíkt án tilgangs.

Fyrirsögnin ,,Sjö Frakkar frömdu sjálfsmorðsárásir" er óskiljanleg sökum þess að vestrænn menningarheimur býður ekki upp á merkingarlega umgjörð til að ræða árásir og sjálfsmorð í sömu andrá.

En um leið og upplýst er að Frakkarnir sjö eru múslímar klæðast sjálfsmorðsárásirnar merkingarbærum búningi. Í vestrænum augum er atburðurinn glæpur en múslímum tekst að finna þar trúartjáningu.


mbl.is Sjö Frakkar frömdu sjálfmorðsárásir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 14. apríl 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband