Einkalíf á opinberum vettvangi, með og án nektar

Einkalíf fólks er æ meira opinbert. Fólk byrjar saman á opinberum vettvangi og stundar fjölskyldulífið með síbylju sjálfsmynda á samfélagsmiðlum fyrir framan alþjóð.

Eftir því sem einkalífið færist í auknum mæli á opinberan vettvang verður erfiðara að draga mörkin milli réttar einstaklingsins til að vera með sig og sitt í friði annars vegar og hins vegar hvað er almenningur

Nekt er einkamál, eða var það til skamms tíma. Tilraun til að gera brjóst kvenna að sjálfsögðum hlut leiddi í ljós að samhengið skipir öllu.

Undir formerkjum hefndarkláms virðist réttarkerfið með tiltölulega skýra skilgreiningu á því hvar mörkin liggja milli löglegra og ólöglegra myndbirtinga af nekt. Skilin verða ógleggri þegar huglægar frásagnir fólks af misheppnuðu parsambandi rata á opinberan vettvang.

Einkalíf er verðmæti sem sífellt erfiðara er að verja fyrir opinberum ágangi.

 


mbl.is „Takk fyrir ad halda framhja mer sæta“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur gefst upp á Árna Páli, kýs Jón Gnarr

Fyrsti formaður Samfylkingar, Össur Skarphéðinsson, telur ekki að sitjandi formaður, Árni Páll Árnason, eigi möguleika að fylkja flokknum í stjórnarráðið og alls ekki í forsætisráðuneytið.

Össur telur Jón Gnarr eigi burði til að ná forsætisráðuneytinu úr höndum Framsóknarflokksins og leiða vinstristjórn til valda, samkvæmt frétt DV byggðri á fasbókarfærslu Össurar.

Össur er þekktur spriklari á vinstri vængnum og kom m.a. á koppinn Bjartri framtíð. Eftir því sem fyrsti formaður Samfylkingar spriklar meira verður vinstri vængur stjórnmálanna brotakenndari.


Lekamálið var pólitík frá a til ö

Lekamálið var pólitískt mál frá uppþhafi og til loka. Pólitíkin byrjaði með því að aðgerðasinnar með samband við fjölmiðla, einkum DV og RÚV, gerðu hælisleitanda að baráttumáli sínu og kröfðust þess að við veittum viðkomandi hæli.

Hælisleitandinn var ekki eins góður pappír og aðgerðasinnar gáfu hann út fyrir að vera. Starfsmaður í innanríkisráðuneytinu veitt fjölmiðlum upplýsingar um hælisleitandann, sem aðgerðasinnar og DV og RÚV vildu ekki að kæmu fram, enda sýndu upplýsingarnar hælisleitandann í miður heppilegu ljósi.

Almenningur átti rétt á þessum upplýsingum enda óskaði heilisleitandinn eftir aðgangi að íslensku samfélagi. Við eigum rétt á að vita sem mest um slíka menn, ekki síst þegar búið er að gera hælisumsóknina að opinberu máli.

Eftir að upplýsingar frá innanríkisráðuneytinu komu fram lögðust aðgerðasinnar og DV/RÚV á eitt að gera upplýsingafjöfina að ,,lekamáli". Þingmenn vinstriflokkanna á alþingi lögðu þeim lið og ríkissaksóknari Jóhönnustjórnarinnar kom í humátt á eftir.

Pólitík lekamálsins varð kristalstær eftir að ítarleg rannsókn og dómsmál leiddi í ljós að starfsmaður innanríkisráðuneytisins lék einleik með því að gera upplýsingarnar opinberar. En það stóð aldrei til að komast að sannleikanum í málinu heldur átti að nota það til að flæma ráðherra úr stjórnarráðinu. Embættismenn tóku þátt í pólitíkinni með glannalegum yfirlýsingum sem ekki eru í neinu samræmi við viðtekna háttsemi.

Umboðsmaður alþingis sýndi starfsfélögum sínum hjá ríkissaksóknara samstöðu og stökk á vagninn með þekktum afleiðingum.

Frá sjónarhóli aðgerðasinna og DV/RÚV og vinstriflokkanna var lekamálið vel heppnuð aðgerð þar sem stök fjöður varð að pólitísku hænsnabúi.

Fyrir almenna borgara var lekamálið lexía um hvað bíður okkar ef upplausnaröflin ná tökum á samfélaginu.

 


mbl.is Ýmislegt athugavert í áliti um lekamálið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 30. mars 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband