Kastljós, kukl og sala á sjónvarpstíma

Kastljós varpaði ljósi á sölumenn sem selja kukl til að lækna ólæknandi sjúkdóma. Umfjöllun Kastljóss er unnin í samvinnu við formann MND-fé­lags­ins.

Umfjöllunin hófst í gær með ítarlegri frásögn af nokkrum þeim sem glíma við sjúkdóminn. Rauði þráðurinn í þeirri umfjöllun var að stórbæta þurfi þjónustuna við MND-sjúklinga og kaupa nýrri og betri tæki handa þeim.

Í Kastljósþætti kvöldsins kom fram að undirbúningur að þessari umfjöllun hafi byrjað í desember síðast liðnum. Þátturinn i kvöld var annars helgaður sölumönnum kuklsins og þeir afhjúpaðir með aðstoð falinna myndavéla.

Viðskiptamódel Kastljóss er þetta: Kastljós gerir samning við forsvarsmenn MND-félagsins um að afhjúpa kuklara - enda er það gott sjónvarpsefni - en á móti fá MND-sjúklingar sjónvarpstíma til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri.

Ef Kastljós fær verðlaun fyrir þessa frammistöðu er álitamál hvort þau ættu að koma frá Blaðamannafélaginu eða Félagi almannatengla.


mbl.is Lögbannskröfunum hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vélbyssu-Helgi Hrafn og tölvuleikirnir

Þingmaður Pírata segir dómstólana ekki veita almenningi vörn þegar lögreglan þarf á dómsúrskurði að halda. Sami þingmaður, Helgi Hrafn Gunnarsson, sagði á alþingi þegar til umræðu var vélbyssueign lögreglunnar

„Ég hef spilað nógu marga tölvu­leiki um æv­ina til að þekkja þetta vopn. Þetta er dráps­tæki,“ sagði Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þingmaður Pírata.

Úr hvaða tölvuleikjum ætli Helgi Hrafn hafi vitneskju sína um réttarfarið á Íslandi? 


mbl.is Sagði enga vernd í dómstólum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórflótti vinstrimanna frá ESB

Jón Baldvin Hannibalsson segir það; Stefán Ólafsson einnig og Katrín Jakobsdóttir fetar sömu slóð: Ísland er ekki á leið í Evrópusambandið í fyrirsjáanlegri framtíð.

Íslenskri vinstrimenn eru ekki einir um að yfirgefa Evópusambandið. Þingmaður Syriza í Grikklandi skrifar í Guardian að eini möguleikinn á mannsæmandi lífi er utan evrunnar.

ESB-sinnar á Íslandi geta ekki leitað til hægri eftir stuðningi. Leiðari Viðskiptablaðsins tók af öll tvímæli um staðfesta óbeit á evrunni. 


Píratar fá fokk-fylgið

Á hverjum tíma er í samfélaginu hópur fólks sem finnst allt í fokki og staða sín sérstaklega. Þetta fólk veitir óánægju sinni útrás með því að velja fyrir okkur hin ókræsilegasta kostinn sem í boði er hverju sinni.

Óánægjufylgið gerir sjaldnast út um kosningar, þó það komi fyrir, sbr. kosningasigur Jóns Gnarr á sínum tíma, en mælist iðulega í skoðanakönnunum. Útlátalaust er að segja hvurn fjandann sem vera skal lendi maður í úrtaki.

Fokk-fylgið mun ekki endast Pírötum fram að næstu kosningum.


mbl.is Píratar í stórsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 3. mars 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband