Agli Helga finnst 130 dauðir lítilræði

Álitsgjafi vinstrimanna, Egill Helgason, segir fáa deyja af hryðjuverkum og lítil ástæða sé að óttast herskáa múslíma. Egill skrifar

En mannfallið af völdum hryðjuverka á Vesturlöndum er ekki mikið – ekki ef miðað er við aðra hluti sem kosta okkur mennina lífið.

Við deyjum vitanlega öll fyrr en seinna. Og er þá ekki allt í lagi að leyfa múslímskum morðingjum að stytta okkur biðina? Svona fyrst þeir njóta þess.


mbl.is Áttu í samskiptum við Ríki íslams
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flóttamenn, hryðjuverk og heimska

Einn eða fleiri hryðjuverkmannanna í París kom nýverið sem flóttamður frá Sýrlandi, segir í Telegraph. Sama heimild upplýsir nafn eins morðingjans. Hann er múslímskur Frakki. Líkt og sálufélagi hans í Danmörku, sem myrti í nafni spámannsins, var sá franski smáglæpamaður í leit að tilgangi.

Múslímatrú veitir aðgengi að paradís ef maður drepur vantrúaða. Þetta stef er kyrjað í moskum víða um hinn vestræna heim undir merkjum trúfrelsis. Annað slagið munu illa gerðir einstaklingar falla fyrir trúarkreddunni og ná sér í paradísarvist.

Lærdómurinn sem við eigum að draga af múslímskum hryðjuverkum undanfarin hálfan annan áratug er eftirfarandi: múslímatrú er viðsjál. Við eigum ekki að búa til múslímska menningarkima á Íslandi. Það felur í sér að við tökum aðeins á móti þeim fjölda flóttamanna sem við treystum okkur til að aðlaga íslensku samfélagi. Sá fjöldi er mældur í fáeinum tugum. Annað væri heimska.

 


mbl.is Taka ætti vel á móti flóttafólki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Múslímaárásir afhjúpa nekt Evrópumannsins

Fyrirmyndarfjölskylda embættismanna í Brussel er franskur maður kvæntur þýskri konu með þrjú þrítyngd börn og heimili í Hollandi. Evrópumaðurinn, samkvæmt Brussel-uppskriftinni, er ekki til nema í örlitlum mæli. Fjölskyldur í Evrópu eru flestar þjóðlegar.

Evrópusambandið boðar eitthvað sem heitir ,,evrópsk gildi" og jafnvel skilyrðir styrkveitingar til vísinda og lista að styrkþegar sýni fram slík gildi í verkum sínum. Á hinn bóginn eru ,,evrópsk gildi" fjarska yfirborðskennd, svo ekki sé meira sagt.

Tökum kristna trú sem dæmi. Evrópa var nær öll kristnuð árið 1000, en bæði Íslendigar í vestri og Ungverjar í austri miða kristnitökuna við það ár. Á þessum þúsund árum fór þannig fyrir kristni að hún klofnaði á 16. öld, með siðaskiptunum, og blóð flaut um alla álfuna í hálfa aðra öld vegna kristinna trúardeilna. Eftir frönsku byltinguna, fyrir 200 árum, var kristni skipulega úthýst af opinberum vettvangi og gerð að einkamáli hvers og eins. Máttugasta hugmyndafræði Evrópu á 20stu öld, marxismi, hataðist við kristni og trúarbrögð almennt.

Íbúar Evrópu eiga ekki sameiginleg gildi vegna þess að þeir eiga ekki sameiginlega tungu. Það er tungumálið sem varðveitir og fóstrar þjóðargildi. Evrópa á engan sameiginlegan almenning. ,,Höfuðborgin", Brussel, er í tilbúnu landi frá 1830 þar sem varanleg stjórnarkreppa ríkir enda tvær þjóðir fyrir á fleti, Vallónar og Flæmingjar.

Þegar múslímar gera árás á höfuðborg annars stærsta ríkis Evrópu rís upp alþjóðleg bylgja samúðar. Nágrannaríki bjóða fram aðstoð sína við að hafa uppi á árásarmönnunum.  Af þessu skyldi ætla að áherslan yrði á sam-evrópskar aðgerðir gegn hryðjuverkum. En því er ekki að heilsa. Hvers vegna er ekki uppi hávær krafa um að ,,Evrópa" berjist gegn múslímskum hryðjuverkum?

Það er vegna þess að kerfin sem ,,Evrópa", þ.e. ESB, býr til eru misheppnuð. Gjaldmiðill ESB, evran, leggur efnahagskerfi þjóða í rúst. Schengen-kerfið, sameiginleg landamæri Evrópu, er gatasigti. Einn eða fleiri árásarmanna í París á föstudag komu til Frakklands í gegnum Grikkland, líklega sem flóttamenn.

Greining Maríu Le Pen, leiðtoga Þjóðarfylkingarinnar, að forsenda þjóðaröryggis er að Frakkar gæti eigin landamæra er blátt áfram óhrekjanleg staðreynd.

Evrópusambandið uppfyllir ekki lágmarkskröfur í þeim verkefnum sem sambandið tekur að sér. Árásir múslíma afhjúpa blekkinguna um ,,Evrópumanninn" sem ímyndað brusselfyrirbæri. Hvorki er ,,Evrópumaðurinn" til né það kerfi sem gæti veitt honum lágmarksvernd.

,,Evrópumaðurinn" á sér frumgerð í ,,Sovétmanninum" fyrir miðja síðustu öld. Í báðum tilfellum átti að búa til nýja manngerð úr hugmyndafræði. Skáldskapur af þessu tagi endar alltaf með ósköpum.


mbl.is Ættingjar árásarmanns handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 15. nóvember 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband