Ný rök fyrir ríkisvæðingu banka

Samtök fjármálafyrirtækja lögðu í gær fram nýja röksemd fyrir því að ríkið ætti sem stærstan hlut í bankakerfinu. Líkur eru á að ríkið ráði tveim bönkum, Íslandsbanka og Landsbanka.

Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja, færir fram þá röksemd í frétt RÚV að vegna röskleika ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs að skattleggja banka þá komi erlendir aðilar í auknum mæli og veiti bankaþjónustu hér á landi. Í frétt RÚV segir

Framkvæmdastjóri samtakanna segir að erlend fjármálafyrirtæki nái í vaxandi mæli viðskiptum af íslenskum fjármálafyrirtækjum

Og þetta er einmitt sem við þurfum. Vandi Íslands er að einkaframtakið kann ekki að reka banka. Það sýndi hrunið svart á hvítu. Þess vegna á ríkið að halda Íslandsbanka og Landsbanka í sinni eigu og skapa þar með rými fyrir fjölbreyttari bankaþjónustu, m.a. erlendis frá.

Þegar Samtök fjármálafyrirtækja játa stöðu mála á hreinskilinn hátt hlýtur ríkisstjórnin að taka mið af því og móta stefnu sem gerir ráð fyrir að ríkið eigi Íslandsbanka og Landsbanka til langs tíma.


mbl.is Arðgreiðslur banka hærri en talið var
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hallgrímur, bestu börnin og aumingjamenningin

Óttar Guðmundsson geðlæknir skrifar hugvekju um aumingjahátt í samfélagsumræðunni. Hugvekjan kemur í kjölfar pistils Guðbergs Bergsonar um aumingjajátningu Hallgríms Helgasonar sem auglýsir áratugagamla nauðgun í jólabók þessa árs.

Hallgrímur er ekki ókunnur endurvinnslu hugmynda og skrifar reglulega um þjóðfélagsmál. Þekktasta framlag Hallgríms er greinin Baugur og bláa höndin sem hann skrifaði haustið 2002 þegar auðmenn voru þess albúnir að leggja undir sig landið.

Hallgrímur formælti þeim sem stóðu í vegi auðmanna, sem hann mærði með orðskviðum eins og þessum:

Við sem heima sitjum skiljum ekki hvers vegna guðfaðir nýja hagkerfisins [þ.e. Davíð Oddsson] snýst gegn bestu börnum þess. Við skiljum ekki hvers vegna sjálfstæðismenn beita öllu sínu gegn sjálfstæðustu mönnum landsins.

Þegar ,,bestu börnin" reynast ómerkileg skítseiði, ef ekki rétt og slétt glæpahyski, er skiljanlegt að eitthvað bresti í brjóstum þeirra sem hossuðu ,,bestu börnunum".

Hvað er þá betra en að lýsa sjálfan sig ráðlausan aumingja og væla til sín samúð?


Bloggfærslur 1. nóvember 2015

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband