Föstudagur, 2. október 2015
Múslímar: engin viðskipti við konur, síst frakkar ljóshærðar
Mest lesna frétt Die Welt í dag er af fasteignamiðlaranum Aline Kern sem starfar í Bad Kreuznach í Þýskalandi. Fjölskylda, ættuð frá Sýrlandi, óskaði eftir að sjá íbúð sem Kern auglýsti.
Þegar á vettvang var komið mættu Kern þrír fullorðnir karlmenn, kona með blæju fyrir andliti og þrjú börn. Einn karlmannanna kunni eitthvað fyrir sér í þýsku. Kern stóð frammi fyrir þeim vanda að karlmennirnir neituðu að skoða íbúðina með henni. Sá sem kunni þýsku sagði Kern að hún væri kona, ljóshærð og hefði í ofanálag horft í augu karlanna. Ekki kæmi til greina að þeir ættu viðskipti við hana.
Kern deildi reynslu sinni af þeim sýrlensku á Facebook og sagðist hafa upplifað sig sem annars flokks borgara í eigin landi. Á Facebook fékk hún m.a. glósur um nasistahneigð.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 2. október 2015
Innanríkisráðherra Merkel ómyrkur um flóttamenn
Innanríkisráðherra Þýskalands, Thomas de Maiziere, segir flóttamenn vanvirða þýska gestrisni: ,,flóttamenn eiga nóg af peningum til að kaupa sér leigubíla að keyra sig mörg hundruð kílómetra vegna þess að þeir eru óánægæðir með aðstæður á einum stað. Þeir fara í verkfall vegna aðbúnaðar, kvarta undan matnum og efna til slagsmála á flóttamannamiðstöðvum."
Í sömu umfjöllun segir varakanslari Merkel, jafnaðarmaðurinn Sigmar Gabriel, að flóttamenn yrðu að átta sig á því að í Þýskalandi gilti jafnrétti, tjáningarfrelsi og trúfrelsi.
Gabriel segir jafnframt að innviðir Þýskalands séu við að bresta vegna álags af flóttamönnum. Ennfremur að það væri ekki kynþáttahatur þótt Þjóðverjar létu í ljós andstöðu við móttöku flóttamanna.
Merkel verður að fá friðarverðlaun Nóbels í næstu viku. Eftir eitt ár verða afleiðingarnar af opingáttarstefnu hennar komnar í ljós og þær verða ekki friðsamar.
Fær Merkel Friðarverðlaun Nóbels? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 2. október 2015
Þorgerður Katrín gefst upp sem ESB-sinni
Óánægja í Sjálfstæðisflokknum stafar EKKI af því að flokkurinn er á móti aðild að Evrópusambandsins, segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrum varaformaður flokksins. Hún segir í viðtali við vísi.is
Það er ákveðinn hópur innan flokksins sem vill sjá aðrar leiðir heldur en forystan er að fara. En menn hafa ekki mikið vit á pólitík og innviðum flokksins ef þeir halda að Evrópumálin séu það sem fólk er óánægt með.
Þorgerður Katrín barðist ásamt Benedikt Jóhannessyni og fáeinum öðrum gegn því á landsfundum Sjálfstæðisflokksins að flokkurinn hafnaði skýrt og skorinort ESB-aðíld.
En núna eru það sem sagt ekki ESB-málin, sem valda óánægju Þorgarðar Katrínar. Óánægða fólkið verður að leita sér að nýju óánægju-máli.
Sumir eiga sér óánægju að hugsjón.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 2. október 2015
Sjálfstæðisflokkurinn nærbuxur klíkukapítalismans?
Útrás og hrun kenndu okkur að aðeins ein útgáfa af kapítalisma þrífst á Íslandi; klikukapítlaisminn sem keyrði þjóðina í gjaldþrot fyrir sjö árum.
Klíkukapítalisminn tekur draum Jósefs úr biblíunni bókstaflega og ætlar sér nú, eftir sjö mögur ár, að fá sjö feit. Eins og í útrás er meiningin að flá feita þjóðareignargöltinn til að seðja klíkukapítalismann.
Ef Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að verða nærbuxnahald klíkukapítalismans tekur flokkurinn meðvitaða ákvörðun um að staðsetja sig á anal-stigi stjórnmálanna.
Ríkið á ekki að selja nærbuxur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)