Mánudagur, 1. september 2014
Pútín er ekki Hitler
Af þýskum fjölmiðlum að dæma er Pútin í Rússlandi endurfæddur Hitler. Bæði Welt og Spiegel keyra uppslátt byggðan á þeim orðum Pútín að Rússar gætu lagt undir sig höfuðborg Úkraínu á tveim vikum.
Stríðsæsingamenn austan hafs og vestan eru tilbúnir að mála Pútín sem einræðissegg sem lætur einskins ófreistað að leggja undir sig lönd hér og lönd þar. Yfirvegaðir greinendur benda á hinn bóginn á þá staðreynd að viðbrögð Pútín eru varnarviðbrögð við ásælni ESB og Nató inn í Austur-Evrópu.
Rússland rekur ekki útþenslustefnu í ætt við Hitlers-Þýskaland. Engin yfirþjóðleg hugmyndafræði, í ætt við nasisma eða kommúnisma, er ráðandi í rússneskri orðræðu. Rússland stendur frammi fyrir fólksfækkun og ekki burðugt að leggja undir sig önnur ríki.
Á hinn bóginn eru tvö bandalög í vestri í örvæntingarfullri leit að tilgangi. Pútín sem Hitler er skálkur sem hressir upp á Evrópusambandið og Nató. Ef fólk kaupir áróðurinn.
Vilja senda vopn til Úkraínu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Mánudagur, 1. september 2014
Ensk fyrirmynd sjálfshaturs íslenskra vinstrimanna
Íslenskir vinstrimenn hatast við allt sem íslenskt er; þeir vilja fullveldið feigt, annað tveggja flytja það til Osló eða Brussel og tala sí og æ um ,,ónýta Ísland". Sjálfshatur vinstrimanna er einnig þekkt á eyju suðaustur af landinu.
Breskir vinstrimenn eru þjakaðir af hatri á öllu bresku og sérdeilis er hatrið magnað á því sem telst enskt. Svo segir rithöfundurinn Sean Thomas og nefnir George Orwell sér til vitnis.
Sjálfshatur breskra vinstrimanna birtist m.a. í afstöðunni til Skotlands, þeir vilja að Skotar brjóti upp Bretland, og til umburðarlyndis gagnvart því að múslímskir karlmenn nauðgi hvítum stúlkum, samanber fjöldanauðganir múslíma á hvítum stelpum í Rotherham.
Sjálfshatur íslenskra vinstrimanna mátti sjá í moskuumræðunni þar sem trítilóðir vinstrimenn líktu saklausum framsóknarmönnum við fasista sökum þess að vildu ekki að múslímar byggi mosku í þjóðbraut.
Mánudagur, 1. september 2014
Átökin í Úkraínu á ábyrgð ESB og Nató
Evrópusambandið ætlaði með stuðningi Bandaríkjanna að gera Úkraínu að áhrifasvæði sínu. Samkvæmt áætluninni átti Úkraína að verða ESB-ríki og ganga í Nató.
Áætlunin tók ekki mið af hagsmunum Rússa, sem telja sér, réttilega, ógnað af hernaðarbandalaginu Nató. Rússar eru í fullum rétti að verja þjóðarhagsmuni sína með því að reisa skorður við útþenslu ESB/Nató í austurátt.
Á þessa leið er greining John J. Mearsheimer í Foreign affairs, sem er tímarit bandarísku stjórnmálaelítunnar, á átökunum í Úkraínu. Mearsheimer er páfi raunsæismanna í pólitík, sem taka harðar pólitískar staðreyndir fram yfir óraunhæfar hugsjónir.
En það eru einmitt holar hugsjónir ESB- og Nató-sinna sem komu Úkraínu í þá stöðu sem landið er núna; rifið í sundur á milli austurs og vesturs.
Pútin vill skipta Úkraínu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)