Guđmundur Andri og sjálfsmynd vinstrimanna

Vinstripólitík dó međ ríkisstjórn Jóhönnu Sig. Fyrsta hreina vinstristjórnin 2009 til 2013 hrundi úr hreinum meirihluta í 12,9 prósent Samfylkingu og 10,9 prósent Vg. Vinstrimenn, sem tölu sig komna til langtímaáhrifa eftir hrun, eru sundrađri en nokkru sinni áđur í lýđveldissögunni og standa uppi málefnalausir.

Ţjóđin hafnađi tillögu vinstrimanna um allsherjarlausnina ,,göngum i Evrópusambandiđ" og einnig tilrauninni til ađ stokka upp stjórnarskrána.

Vinstrimenn reyna ađ fitja upp á einhverju nýju til ađ slá sér upp međ. Fyrrum fjölmiđlarekandi Baugsveldisins, Gunnar Smári Egilsson, sett á flot hugmyndina um ađ Ísland sćkti um inngöngu í Noreg. Rökstuđningurinn er sá sami og fyrir ESB-ađild; ađ Ísland sé ónýtt og viđ séum vonlaus ţjóđ sem verđum ađ segja okkur til sveitar.

Guđmundur Andri Thorsson rithöfundur og vinstrimađur er orđinn ţreyttur á vćlinu í félögum sínum um ónýta Ísland. Hann skrifar ádrepu í Fréttablađiđ og biđur um minni vanmetagrát og pínulítiđ meiri dómgreind.

Sjálfsmynd vinstrimanna er ónýta Ísland. Afgerandi meirihluti ţjóđarinnar hafnar ţessari sjálfsmynd. Af ţví leiđir eru vinstrimenn dćmdir til ađ vera forsmáđur minnihluti. Örvćntingin skilar sér í bjánahugmyndum eins og ađ Ísland verđi hluti af Noregi.


Laun, prósentur og lygi

Forstjórastéttin fleytir rjómann af launakökunni, svo mikiđ er ljóst. En ţađ er á hinn bóginn ekki svo ađ ađ allir launţegar sitji fastir í 2,8 prósent eymdarhćkkun. Í hádegisfréttir RÚV segir ađ launavísitalan hćkkađi um tćp sex prósent, sem gefur vísbendingu um launaskriđ.

ASÍ og SA semja um lágmarkslaun, sem of eru ađeins viđmiđ til ađ byrja samningaviđrćđur um laun. Jafnvel sumarvinnufólk gat í vor fariđ fram á hćkkun umfram taxta enda ástandiđ á atvinnumarkađi ţannig ađ eftirspurn er eftir fólki. Sumir opinberir starfsmenn, einkum sérfrćđingar, fara einu sinni til tvisvar á ári í launaviđtöl og ţar er hćgt ađ hćkka sig í taxta međ vísun í markađslaun.

Ađrir, kennarar sérstaklega, hreyfa sig ekki spönn frá taxtarassi; ţeirra laun eru skráđ og negld niđur. 


mbl.is Sala stóreykst á Range Rover-jeppum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Launaheimska forseta ASÍ

Allt frá hruni eru lífeyrissjóđirnir ráđandi í mörgum helstu fyrirtćkjum landsins. Stjórnir lífeyrissjóđanna eru skipađar af verkalýđshreyfingunni annars vegar og hins vegar Samtökum atvinnulífsins.

Forseti Alţýđusambandsins ber fulla ábyrgđ á útblásnum launum forstjóra og millistjórnenda međ ţví ađ láta ţađ óátaliđ ađ fyrirtćki í eigu lífeyrissjóđanna stundi launabruđl í ţágu ţeirra best settu.

Valkvćđ launaheimska forseta ASÍ er flótti frá ábyrgđ.


mbl.is Launaţróun minnir á árin fyrir hrun
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

Bloggfćrslur 28. júlí 2014

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband