Föstudagur, 3. október 2014
Forseti ASÍ úr Patról á Land Cruiser; góðæri í landinu
Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ, sem sagðist annálaður Nissan Patról-maður fyrir nokkrum árum, er kominn á Land Cruiser núna á tímum góðæris.
,,Uppgradering" forseta ASí á jeppum er til marks um góðan árangur í efnahagsmálum okkar Íslendinga síðustu ár.
Í góðærinu eigum við að huga að niðurgreiðslu skulda en rasa ekki um ráð fram. Þá eigum við að forðast freistingar, eins og að leggja, afsakið, stöðva, jeppann okkar á bílastæðum hreyfiskertra.
Fjárlögin uppskrift að ófriði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 3. október 2014
Kynjakvótar allsstaðar en ekki í söngvakeppni
Kyjakvótar eru settir á stjórnir fyrirtækja og á stofnanir hins opinbera. Þá er voða ósmart að vera ekki með fléttulista í stjórnmálum. En þegar kynjakvóti er settur á söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva ætlar allt um koll að keyra.
Ætli það sé eins með söngvakeppnina og kynjaþemudaginn í Melaskóla, að kynjakvótaliðið er farið að bíta i skottið á sjálfu sér?
Hvað er niðurlægjandi? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)