Fimmtudagur, 16. október 2014
Hjarðhegðun, hagfræði og fjármál
Hagfræði er að hluta gisk á hvaða hjarðhegðun sé líklegust á hlutabréfamörkuðum í það og það skiptið. Síðustu daga eru engir þeir stóratburðir á ferðinni sem einir og sér geta útskýrt fall hlutabréfa.
Á hinn bóginn er vitað að peningaflæði frá bandaríska seðlabankanum hélt uppi verði hlutabréfa á alþjóðamörkuðum og bjó í leiðinni til pappírsauðæfi. Í Washington var tilkynnt fyrir nokkrum mánuðum að ódýrir dollarar yrðu ekki lengur í boði.
Um tíma var haldið að evrópski seðlabankinn hlypi í skarið fyrir þann bandaríska og byði upp á peninga eins og hver vildi á núllvöxtum. Það reyndist óskhyggja.
Pappírsauðæfin hverfa þess dagana án þess að nokkur gæti séð það fyrir með vissu. Það segir nokkra sögu um þau órökrétta hjarðhegðun í heimi fjármála.
Adam var ekki lengi í Paradís | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 16. október 2014
Matarskatturinn ekki prinsippmál
Það getur ekki verið prinsippmál Sjálfstæðisflokksins að hækka skatt á matvæli. Þegar fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar var lagt fram sagði formaður flokksins í fjölmiðlum að umræðan myndi slípa frumvarpið.
Nú hefur umræðan sýnt fram á að rökin fyrir hækkun matarskatts halda ekki. Það er engin eftirspurn í samfélaginu eftir ,,einfaldara skattaumhverfi" ef það felur í sér hækkun á matarverði.
Skynsamlegast er að lagfæra fjárlagafrumvarpið þannig að matur verði áfram í lægra vsk-þrepi.
Sjálfstæðisflokkurinn er þrátt fyrir allt að stofni til íhaldsflokkur. Og íhald er að halda í það sem reynst hefur vel. Enginn kvartaði undan fyrirkomulagi matarskatts. Hvers vegna að breyta því sem virkar?
Vill Bryndísi ekki úr flokknum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 06:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)