Fimmtudagur, 23. febrúar 2012
Evruland er kreppuland
Evruland er bæði í efnahagslegri og pólitískri kreppu og verður það í fyrirsjáanlegri framtíð. Tilraunin með einn gjaldmiðil fyrir 17 þjóðríki er dæmd til að mistakast. Spurningin er aðeins hvort það verður evran en þjóðríkið sem gengur fyrir ætternisstapa.
Bandaríska stofnunin Center for Economic and Policy Research (CEPR) ráðleggur Grikkjum að hverfa úr evrulandi. Innan evrulands verður efnahagur Grikkja í dróma í áratug eða lengur. Argentína, sem varð gjaldþrota fyrir áratug, var nokkra mánuði að vinna sig upp með eigin gjaldmiðil.
Baktjaldamakk Evrópusambandsins vex í réttu hlutfalli við örvæntinguna. Alræðisembættismenn í Brussel skipta út löglega kjörnum stjórnvöldum og véla svo um að breytingar á stofnsáttmálum komi ekki til þjóðaratkvæðagreiðslu.
Evrópusambandið er að syngja sitt síðasta.
|
Ný efnahagslægð á leiðinni |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 23. febrúar 2012
Stjórnlagaráði sigað á forsetann
Samfylkingin, Vinstri grænir og Þór Saari ætla að siga stjórnlagaráði á forseta Íslands með því að setja ráðinu fyrir sérstaka athugun á forsetaembættinu. Kvikindisleg hefndarfýsn vinstrimanna kemur sérlega vel fram í þeim orðum nefndarformanns að tilefnið sé ræða sitjandi forseta, Ólafs Ragnars Grímssonar.
Víst eru vinstriflokkarnir sárir sitjandi forseta fyrir að veita þjóðinni í tvígang tækifæri að segja álit sitt á Icesave-samningunum. En það hljóta að vera takmörk fyrir ósvífni meirihluta alþingis.
Stjórnarskrá lýðveldisins er ekki plagg til að nota í pólitískan hanaslag.
|
Skoði betur kaflann um forsetann |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 23. febrúar 2012
Ef Jón Baldvin hefði verið prestur
að ekki sé talað um: biskup.
Tja, þá væri hann í virkilega vondum málum.
|
Segir rangt farið með málsatvik |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Fimmtudagur, 23. febrúar 2012
Þór Saari býr sér til vinnu
Þór Saari heldur lífi í ríkisstjórn Jóhönnu Sig. og kemur í veg fyrir þingkosningar. Þór Saari veit að hann á ekki möguleika endurkosningu en mælist fylgi Hreyfingarinnar ca. 1-2% síðustu misserin.
Þór Saari er að búa sér til vinnu næsta vetur með því að kalla sama kverúlantaráðið hennar Jóhönn og fá því verkefni að fara yfir eigin tillögur sem þó eru ekki nema nokkurra vikna gamlar.
Eftir ,,ráðgefandi þjóðaratkvæði" í sumar ætlar Þór Saari og viðundrin á alþingi að fara yfir málin næsta vetur - á fullu kaupi hjá almenningi sem fær ekki að kjósa vegna þess að Þór Saari þarf að halda í þingsætið.
|
„Pawel virðist eitthvað misskilja ferlið“ |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 23. febrúar 2012
Kverúlantaráðið, viðundrin á alþingi og forsetinn
Búsáhaldarbyltingarseggurinn Þór Saari seldi stuðning sinn við ríkisstjórn Jóhönnu Sig. því verði að umboðslaust kverúlantaráð fengi veiðileyfi á stjórnarskrá lýðveldisins. Viðundrin á alþingi sem samþykktu tillögu Þórs eru að búa til stjórnskipunarkreppu sem ekki mun sjá fyrir endann á.
Engin rök standa til þess að stjórnarskrá lýðveldisins sé orsök hrunsins. Niðurrifsöfl í samfélaginu ætla sér á hinn bóginn að nota hrunið sem skálkaskjól fyrir atlögu að stjórnarskránni.
Viðundrin á alþingi, Þór Saari og vinstriflokkarnir, ætla að undangengnum fundi kverúlantaráðsins að efna til þjóðaratkvæðis um nýja stjórnarskrá. Þjóðaratkvæðagreiðslan á að fara fram samhliða forsetakosningum.
Bandalag þeirra sem vilja verja stjórnarskrána fyrir atlögu öfgahópa mun leita til forsetans, Ólafs Ragnars Grímssonar, um forystu gegn stjórnleysinu.
|
Þingið brást stjórnlagaráði |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)

